| Ólafur Haukur Tómasson

Grikki á leið til Liverpool - uppfært

Þær fregnir hafa borist í kvöld að Liverpool sé nálægt því að fá nýjan miðvörð í sínar ráðir en um er að ræða gríska varnarmanninn Sotiris Kyrgiakos. Nöfn á borð við Ryan Shawcross, Michael Turner og Sylvain Distin hafa oftast komið upp á sjónarsviðið þegar rætt er um hugsanleg leikmannakaup og því koma þessar fregnir eins og þruma úr heiðskíru lofti.

Liverpool og gríska liðið AEK hafa samkvæmt þeim fregnum komist að samkomulagi um kaupverð á hinum þrítuga Kyrgiakos en talið er að kaupverðið sé í kringum þrjár milljónir evra og því telst hann vera töluvert ódýrari kostur en áðurnefndir leikmenn. Einnig er sagt að hann hafi kvatt liðsfélaga sína hjá AEK og sé nú á leið til Englands til að klára smáatriðin í samningi við Liverpool og undirganga læknisskoðun.

Kyrgiakos er hávaxinn og sterkur varnarmaður sem hefur reynslu úr efstu deildum Grikklands, Þýskalands, Skotlands og í Meistaradeildinni. Hans helsti kostur er hve sterkur hann er í loftinu og er mikil ógn í honum í föstum leikatriðum, bæði í vörn og sókn.

Liverpool hefur þó ekki enn komið með yfirlýsingu varðandi félagaskiptin en hugsanlegt er að eitthvað gæti verið varið í þessar fregnir og þá sérstaklega í ljósi þeirra orðróma um að Rafael Benítez hafi eingöngu tvær milljónir punda til leikmannakaupa en hann hefur áhuga á að breikka leikmannahóp sinn fyrir tímabilið og þá jafnvel bæti við sig miðverði og kantmanni.

Kyrgiakos hefur greint frá því á opinberu heimasíðu sinni að hann hafi komist að samkomulagi við Liverpool: "Ég hef aldrei falið afleiðingar ákvarðanna minna. Í síðustu viku sagði ég að ég yrði leikmaður AEK næstu fjögur árin og ég meinti það sem ég sagði þá. Í dag tók ég hins vegar stærstu ákvörðun ferils míns, að fara aftur orða minna var erfitt en svona er lífið og það getur haft í för með sér óvenjulega hluti.

Ég vil tilkynna stuðningsmönnum AEK að á mánudagskvöldið fékk ég í hendurnar tilboð frá Liverpool, tilboð sem ég hef ákveðið að taka." sagði Kyrgiakos.

Þá verður að telja líklegt að Kyrgiakos verðir tilkynntur sem nýjasti leikmaður Liverpool, líklega áður en vikan er úti, ef það er að marka það sem hann segir á heimasíðu sinni.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan