Mark spáir í spilin
Liverpool hefur nú tapað helmingnum af þeim deildarleikjum sem liðið tapaði á síðasta keppnistímabili og það eftir einn leik. Ekki er það nú gæfulegt. Þetta gæti staðið upp úr eftir fyrsta leikinn en má ekki líka grípa til gamla máltækisins sem kveður á um að fall sé fararheill! Það er allt spurning um hvaða pól fólk vill taka í hæðina í lífinu. Sem sagt jákvæni eða neikvæðni. Vissulega var tapið á sunnudaginn mjög slæmt en það eru nú 37 deildarleikir eftir á þessu keppnistímabili! Skyldi ekki vera betra að líta þannig á stöðuna eftir fyrsta leik í stað þess að svekkja sig of mikið á tapleiknum?
Fróðleiksmolar...
- Liverpool vantar þrjú stig til að ná 5000 stigum í efstu deild. Ekkert lið hefur náð fleiri stigum í efstu deild.
- Liverpool tapaði aðeins tveimur deildarleikjum á síðustu leiktíð en nú hefur einn tapast nú þegar.
- Tapið gegn Tottenham var það fyrsta í ellefu deildarleikjum hjá Liverpool.
- Liverpool og Stoke gerðu jafntefli í báðum deildarleikjum sínum á síðasta keppnistímabili. Ekkert mark var skorað í leikjunum.
- Stoke var eina liðið sem Liverpool tókst ekki að skora mark hjá á síðustu sparktíð.
Spá Mark Lawrenson
Liverpool v Stoke City
Á köflum ríkti ringulreið í liði Liverpool gegn Tottenham. Slíkt er óvanalegt sð sjá og ég held að þetta sýni hversu mjög Xabi Alonso verður saknað. Á síðasta keppnistímabili hefði liðið náð jafntefli í svona leik. Núna verður liðið að vinna. Rafa Benítez var ósáttur við sómgæsluna á sunnudaginn en sannleikurinn var sá að Tottenham var betra liðið.
Stoke er erfitt heim að sækja en liðið er ekki jafn sterkt á útivöllum. Þar á bæ vita menn að allt sem gefst gegn toppliðunum er ábót.
Úrskurður: Liverpool v Stoke City 2:0.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

