Við rásmarkið
Kapphlaupið um enska meistaratitilinn hefst á morgun. Hér er flest það sem þú þarft að vita um liðið þitt nú þegar liðin bíða við rásmarkið.
Árangur á síðustu leiktíð:
Enska deildin: Annað sæti. Manchester United varð enskur meistari.
F.A. bikarinn: Liverpool féll úr leik í 4. umferð keppninnar. Liðið mátti þola 1:0 tap fyrir Everton á Goodison Park í framlengdum leik. Liðin höfðu áður gert 1:1 jafntefli á Anfield Road. Chelsea vann F.A. bikarinn eftir 2:1 sigur á Everton
Deildarbikarinn: Liverpool féll úr leik í 4. umferð. Liverpool tapaði þá 4:2 fyrir Tottenham á White Hart Lane. Manchester United vann Deildabikarinn eftir að leggja Tottenham að velli í vítaspyrnukeppni eftir 0:0 jafntefli eftir framlengingu.
Meistaradeildin: Liverpool komst í átta liða úrslit eftir magnaða Evrópuvegferð. Ferðinni lauk líkt og leiktíðina áður eftir rimmu við Chelsea. Liðin gerðu jafntefli 4:4 í ótrúlegum leik á Stamford Bridge. Chlesea vann fyrri leikinn 3:1 og sá sigur kom liðinu áfram.
Leikjahæsti maður á síðustu leiktíð: Jamie Carragher lék 54 leiki af 55.
Markahæsti maður: Steven Gerrard skoraði 24 mörk í öllum keppnum.
Komnir til félagsins:
Glen Johnson. Kom frá Portsmouth fyrir 17 milljónir sterlingspunda.
Alberto Aquilani. Kom frá Roma fyrir 20 milljónir sterlingspunda.
Farnir á braut:
Xabi Alonso. Seldur til Real Madrid fyrir 30 milljónir sterlingspunda.
Alvaro Arbeloa. Seldur til Real Madrid fyrir 3,5 milljónir sterlingspunda.
Sebastian Leto. Seldur til Panathiakos í Grikklandi fyrir 3 milljónir sterlingspunda.
Jack Hobbs. Seldur til Leicester City.
Paul Anderson. Seldur til Nottingham Forest
Adam Hammill. Seldur til Barnsley.
Sami Hyypia. Fór á frjálsri til Bayer Leverkusen.
Jermaine Pennant. Fór á frjálsri sölu til Real Zaragoza á Spáni.
Craig Lindfield. Leystur undan samningi.
Mikel San Jose. Fór í lán til Atletico Bilbao.
Hvað segir sparkspekingurinn? Alan Hansen hafði þetta að segja um gengi Liverpool, á komandi vetri, á vefsíðu Liverpool F.C.
"Í staðinn fyrir að bíða og sjá hvað liðin ætla sér að gera þá reikna ég með að Rafa geri það sem aðdáendur Liverpool vilja að liðið geri. Það er að ráðast gegn andstæðingunum frá fyrstu mínútu og sýna þeim í tvo heimana! Mér fannst ég sjá þessa breytingu á liðinu á seinni hluta síðasta tímabils og vonandi heldur liðið áfram á þeirri braut. Í rauninni fannst mér verða ákveðin kaflaskil í leik liðsins í 4:0 sigrinum á Real Madrid. Þá mætti liðið mjög grimmt til leiks og spilaði flotta sóknarknattspyrnu allan tímann. Síðan hélt liðið áfram að spila þannig út tímabilið. Það var virkilega gaman að fylgjast með liðinu í lok tímabilsins í fyrra og ég vona að sá leikstíll verði áfram ofan á."
"Ég er mjög spenntur fyrir komandi tímabili og hef virkilega trú á því að núna komi þetta loksins hjá okkur. Við vorum hársbreidd frá því að ná titlinum í fyrra en Manchester United var aðeins sterkara. Ef við náum að taka upp þráðinn þar sem við hættum í maí þá eigum við virkilega góða möguleika."
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

