| Heimir Eyvindarson

Alan Hansen spáir því að biðin sé senn á enda

Liverpool goðsögnin Alan Hansen er fullur bjartsýni fyrir komandi tímabil. Í viðtali við opinbera heimasíðu Liverpool í dag segist Hansen hafa fulla trú á því að Liverpool muni landa Englandsmeistaratitlinum í vor, eftir 20 ára bið.

,,Við töpuðum of mörgum stigum í leikjum gegn liðum sem við áttum að klára á síðasta tímabili. Of mörg jafntefli kostuðu okkur í raun titilinn þegar upp var staðið, en ég er viss um að Rafa Benítez hefur nú áttað sig á því hvað það er sem þarf til að snúa þessum jafnteflum upp í sigur." 

,,Ég bind vonir við það að verðum ákveðnari gegn andstæðingum sem við eigum að sigra, en gerðum of mörg jafntefli við á síðustu leiktíð. Í staðinn fyrir að bíða og sjá hvað liðin ætla sér að gera þá reikna ég með að Rafa geri það sem aðdáendur Liverpool vilja að liðið geri - þ.e. að sækja á þá frá fyrstu mínútu og sýna þeim í tvo heimana!"

,,Mér fannst ég sjá þessa breytingu á liðinu á seinni hluta síðasta tímabils og vonandi heldur liðið áfram á þeirri braut. Í rauninni fannst mér verða ákveðin kaflaskil í leik liðsins í 4-0 sigrinum á Real Madrid. Þá mætti liðið mjög grimmt til leiks og spilaði flottan sóknarbolta allan tímann. Síðan hélt liðið áfram að spila þannig út tímabilið."

,,Það var virkilega gaman að fylgjast með liðinu í lok tímabilsins í fyrra og ég vona að sá leikstíll verði áfram ofan á."

,,Ég er mjög spenntur fyrir komandi tímabili og hef virkilega trú á því að núna komi þetta loksins hjá okkur. Við vorum hársbreidd frá því að ná titlinum í fyrra, en Manchester United voru örlítið sterkari. Þeir verða ábyggilega ekki eins sterkir í vetur þegar Ronaldo nýtur ekki lengur við, hann vann einfaldlega fullt af leikjum fyrir þá á síðustu leiktíð og það mun ekki gerast núna, svo mikið er víst."

,,Ef við náum að taka upp þráðinn þar sem við hættum í maí þá eigum við virkilega góða möguleika."
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan