| Sf. Gutt

Fernando staðfestir nýjan samning!

Í dag var tilkynnt að Fernando Torres hefði skrifað undir nýjan samning við Liverpool. Þar með hefur hann staðfest áframhald á veru sinni hjá Liverpool. Fernando gerði upphaflega sex ára samning við Liverpool. Nú hefur kaup hans verið hækkað þannig að hann mun nú hafa 110.000 sterlingspund á viku. Samningurinn gildir nú, með eins árs framlengingarmöguleika, til ársins 2014. Eftir að þessi samningur er í höfn ætti að vera öruggt að Fernando Torres fer hvorki eitt eða neitt næstu árin.

Rafael Benítez er auðvitað ánægður með að landi hans verður um kyrrt. "Fernando er einn af bestu sóknarmönnum í heimi og ef mið er tekið af aldri hans má slá því föstu að hann á eftir að verða enn betri. Öll stærstu félög í heimi vildu hafa hann í sínum röðum en hann hefur sýnt með þessum samningi að hann vill leggja hart að sér til að njóta velgengni hjá Liverpool. Hann býr yfir miklum hæfileikum en hann vill verða ennþá betri."





TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan