| Sf. Gutt
Þá er komið að hinum árlega, fróðlega og sívinsæla þætti sem segir af þeim gömlu. Þetta er fyrri hluti. Í honum segir af nokkrum fyrrum leikmönnum og framkvæmdastjórum Liverpool sem fengust við framkvæmdastjórn á síðasta keppnistímabili. Hafa ber í huga að listi þessi er ekki tæmandi og það er stiklað á stóru.
Kevin Keegan: "Frelsarinn" hóf keppnistímabilið sem framkvæmdastjóri Newcastle United. En leiktíðin var varla byrjun þegar Kevin var búinn að fá nóg af ruglinu í stjórn félagsins og lét sig hverfa. Það var sennilega gáfulegt hjá honum því ruglið hélt áfram og Newcastle féll. Ekki þykir mér líklegt að það hefði gerst ef Kevin hefði verið við stjórn alla leiktíðina. Trúlegt er að Kevin Keegan sé hér með hættur knattspyrnuframkvæmdastjórn og er vissulega sjónarsviptir af honum.
Paul Ince: Foringinn eða Moldvarpan, hvernig sem Púllarar minnast hans, yfirgaf Milton Keynes Dons sem áður hét Wimbledon fyrir ári og tók við Blackburn Rovers. Hann varð þar sem fyrsti enski blökkumaðurinn til að stýra liði í efstu deild á Englandi. Honum gekk ekki vel í byrjun og þar sem þolinmæði yfirmanna knattspyrnufélaga er ekki mikil missti Paul starfið og það fyrir jól. Það hljóp á snærið hjá honum í sumar og hann fékk aftur gamla starfið sitt hjá M. K. Dons. Thomas sonur hans lék með unglingaliði Liverpool og yngri landsliðum Englands. Efnilegur piltur.
Paul Jewell: Paul hóf leiktíðina með Derby eftir að hafa mistekist að bjarga liðinu frá falli úr efstu deild. Liðið átti erfitt uppdráttar og þar kom að Paul hrökklaðist úr starfi.
Steve Nicol: Steve hélt áfram starfi sínu í Bandaríkjunum hjá New England Revolution. Steve er einn virtasti framkvæmdastjóri í Bandaríkjunum og hefur verið farsæll í starfi þar í landi.
Dean Saunders: Dean var í þjálfaraliði Newcastle en fékk tækifæri til að stjórna Wrexham. Hlutverk hans var að koma liðinu upp í neðstu deildina úr utandeildarkeppninni. Það tókst ekki en Dean var ráðinn áfram.
Jim Magilton: Norður Írinn stjórnaði hjá Ipswich Town þar til undir lok leiktíðarinnar en þá var honum vikið frá. Nokkrum dögum seinna var Roy Keane ráðinn í hans stað. Tilviljun eða hvað? Jim hefur þó unnið sig í álit sem stjóri og hann var ráðinn til Queens Park Rangers í sumar.
John Toshack: Veilsverjinn stjórnaði Wales fimmtu leiktíðina. John hefur tekið þann pól í hæðina að yngja liðið upp og margir ungir leikmenn hafa fengið tækifæri hjá honum. Liðinu hefur verið að taka framförum og það virðist sátt um störf John.
Roy Evans: Roy hélt áfram störfum sem nánasti samstarfsmaður John Toshack.
Gary McAllister: Skotinn var við stjórn Leeds United. Honum gekk ekki nógu vel að frá félaginu. Gary kom liðinu ekki almennilega í gang og missti starfið.
Alex Miller: Alex hætti sem þjálfari hjá Liverpool og fór til Japans þar sem hann tók við stjórn liði þar í landi. Hann bjargaði liðinu frá falli en gekk síður á þessari leiktíð og hætti.
Markus Babbel: Markus var fenginn til að taka við Stuttgard og tók slaginn. Honum gekk þokkalega að fóta sig í starfi og liðið var í efri hluta deildarinnar.
John Barnes: Kappinn var landsliðsþjálfari Jamaíku og stýrði liðinu í örfáum leikjum þar til honum bauðst að taka við Tranmere Rovers. Hann hugsaði sig ekki tvisvar um og tók við liðinu. Hægri hönd hans verður Jason McAteer sem lék með John hjá Liverpool. Liðinu hlýtur að eiga eftir að ganga vel!
TIL BAKA
Þeir gömlu
Þá er komið að hinum árlega, fróðlega og sívinsæla þætti sem segir af þeim gömlu. Þetta er fyrri hluti. Í honum segir af nokkrum fyrrum leikmönnum og framkvæmdastjórum Liverpool sem fengust við framkvæmdastjórn á síðasta keppnistímabili. Hafa ber í huga að listi þessi er ekki tæmandi og það er stiklað á stóru. Kevin Keegan: "Frelsarinn" hóf keppnistímabilið sem framkvæmdastjóri Newcastle United. En leiktíðin var varla byrjun þegar Kevin var búinn að fá nóg af ruglinu í stjórn félagsins og lét sig hverfa. Það var sennilega gáfulegt hjá honum því ruglið hélt áfram og Newcastle féll. Ekki þykir mér líklegt að það hefði gerst ef Kevin hefði verið við stjórn alla leiktíðina. Trúlegt er að Kevin Keegan sé hér með hættur knattspyrnuframkvæmdastjórn og er vissulega sjónarsviptir af honum.
Paul Ince: Foringinn eða Moldvarpan, hvernig sem Púllarar minnast hans, yfirgaf Milton Keynes Dons sem áður hét Wimbledon fyrir ári og tók við Blackburn Rovers. Hann varð þar sem fyrsti enski blökkumaðurinn til að stýra liði í efstu deild á Englandi. Honum gekk ekki vel í byrjun og þar sem þolinmæði yfirmanna knattspyrnufélaga er ekki mikil missti Paul starfið og það fyrir jól. Það hljóp á snærið hjá honum í sumar og hann fékk aftur gamla starfið sitt hjá M. K. Dons. Thomas sonur hans lék með unglingaliði Liverpool og yngri landsliðum Englands. Efnilegur piltur.
Paul Jewell: Paul hóf leiktíðina með Derby eftir að hafa mistekist að bjarga liðinu frá falli úr efstu deild. Liðið átti erfitt uppdráttar og þar kom að Paul hrökklaðist úr starfi.
Steve Nicol: Steve hélt áfram starfi sínu í Bandaríkjunum hjá New England Revolution. Steve er einn virtasti framkvæmdastjóri í Bandaríkjunum og hefur verið farsæll í starfi þar í landi.
Dean Saunders: Dean var í þjálfaraliði Newcastle en fékk tækifæri til að stjórna Wrexham. Hlutverk hans var að koma liðinu upp í neðstu deildina úr utandeildarkeppninni. Það tókst ekki en Dean var ráðinn áfram.
Jim Magilton: Norður Írinn stjórnaði hjá Ipswich Town þar til undir lok leiktíðarinnar en þá var honum vikið frá. Nokkrum dögum seinna var Roy Keane ráðinn í hans stað. Tilviljun eða hvað? Jim hefur þó unnið sig í álit sem stjóri og hann var ráðinn til Queens Park Rangers í sumar.
John Toshack: Veilsverjinn stjórnaði Wales fimmtu leiktíðina. John hefur tekið þann pól í hæðina að yngja liðið upp og margir ungir leikmenn hafa fengið tækifæri hjá honum. Liðinu hefur verið að taka framförum og það virðist sátt um störf John. Roy Evans: Roy hélt áfram störfum sem nánasti samstarfsmaður John Toshack.
Gary McAllister: Skotinn var við stjórn Leeds United. Honum gekk ekki nógu vel að frá félaginu. Gary kom liðinu ekki almennilega í gang og missti starfið.
Alex Miller: Alex hætti sem þjálfari hjá Liverpool og fór til Japans þar sem hann tók við stjórn liði þar í landi. Hann bjargaði liðinu frá falli en gekk síður á þessari leiktíð og hætti.
Markus Babbel: Markus var fenginn til að taka við Stuttgard og tók slaginn. Honum gekk þokkalega að fóta sig í starfi og liðið var í efri hluta deildarinnar.
John Barnes: Kappinn var landsliðsþjálfari Jamaíku og stýrði liðinu í örfáum leikjum þar til honum bauðst að taka við Tranmere Rovers. Hann hugsaði sig ekki tvisvar um og tók við liðinu. Hægri hönd hans verður Jason McAteer sem lék með John hjá Liverpool. Liðinu hlýtur að eiga eftir að ganga vel!
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

