| Sf. Gutt

Stoltur að hafa orðið fyrir valinu

Ítalinn Alberto Aquilani er kominn til Liverpool. Hann segist stoltur yfir því að orðið fyrir valinu sem leikmaður liðsins.

Alberto segir að Rafael Benítez og Eduardo Macia, yfirnjósnari Liverpool, hafi sannfært hann um að Liverpool sé rétta liðið fyrir hann. Þetta og fleira kom fram á blaðamannafundi hans í Liverpool í dag.
 
"Ég er mjög stoltur yfir því að Rafa valdi mig og ég á líka Eduardo Macia mikið að þakka. Síðustu árin hafa verið góðir leikmenn í liðinu og ég hlakka mikið til að leika með þeim. Mér hefur fundist liðið spila skemmtilega og leikmennirnir hafa höfðað til mín. Jafnvel áður en ég kom hingað var ég á þeirri skoðun að Steven Gerrard væri sterkasti miðjumaður í heimi. Ég er mjög stoltur af að fá að spila við hliðina á honum og ég vona að ég geti lært af honum."

Stuðningsmenn Liverpool munu ekki geta barið Alberto augum strax því Ítalinn er meiddur á ökkla og verður ekki leikfær fyrr en seint í haust. Hann vonast eftir að ná sér sem fyrst af meiðslunum.

"Læknirinn hérna er búinn að skoða mig og veit nákvæmlega hvað er að. Hann segir að þessi meiðsli eigi eftir að lagast fullkomlega. Ég ætla mér að vera lengi hérna og ég er vongóður um að þessi meiðsli eigi eftir að lagast alveg. Auðvitað vil ég spila sem allra fyrst og ég held að þetta verði ekkert vandamál. Því miður get ég ekki spilað strax en ég legg mig allan fram um að ná mér og ég get ekki beðið eftir því að komast í gang."
 
Ýmsir sparkspekingar hafa haldið því fram að Alberto muni eiga erfitt uppdráttar í ensku knattspyrnunni og telja að hann sé ekki nógu sterkur fyrir hörkuna sem þar er. Ítalinn gerir sér grein fyrir að það verður erfitt að spila á Englandi.  

"Ég tel að Úrvalsdeildin sé sú erfiðasta. Hún er ein af bestu deildunum og hér eru mjög góð lið. Það verður erfitt að spila hérna en ég er mjög spenntur fyrir því. Ég vonast til að leika lykilhlutverk hérna. Framkvæmdastjórinn veit hvað í mér býr og ég vonast til að uppfylla vonir hans. Ég er hreyfanlegur miðjumaður og reyni að láta til mín taka með yfirferð minni. Hreyfanleiki er einn helsti styrkleiki minn."

Vonandi verður Alberto leikfær sem allra fyrst. Þegar hann verður tilbúinn í slaginn fær hann treyju númer 4.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan