| Sf. Gutt
Nokkrir leikmenn Liverpool hituðu fyrir upphaf deildarkeppninnar, núna um helgina, með því að spila með landsliðum sínum. Einn var hér á landi og annar hefði átt að vera hér en var ekki.
Þeir Dirk Kuyt og Ryan Babel voru í hollenska landsliðinu sem tók á móti því enska en Glen Johnson, félagi þeirra í Liverpool, var í því enska. Ryan kom inn sem varamaður í hálfleik. Dirk skoraði fyrsta mark leiksins eftir mikil mistök í vörn enska liðsins. Rafael van der Vaart skoraði aftur eftir mistök í vörn enskra. Englendingar gáfust þó ekki upp og Jermaine Defoe, sem kom inn sem varamaður, skoraði tvívegis og tryggði jafntefli 2:2. Emile Heskey, fyrrum leikmaður Liverpool, var í enska liðinu eins og í síðustu leikjum.
Evrópumeistarar Spánverja unnu Makedóna 3:2 á útivelli. Goran Pandev kom Makedónum í 2:0 í fyrri hálfleik. Spánverjar brugðust hart við í upphafi síðari hálfleiks og skoruðu þrjú mörk á fjórum mínútum. Fernando Torres skoraði fyrst á 52. mínútu. Gerard Pique, leikmaður Barcelona, jafnaði á 55. mínútu og einni mínútu síðar skoraði Albert Riera sigurmarkið! Jose Reina stóð í marki Spánverja hluta leiksins. Þeir Alvaro Arbeloa og Xabi Alonso komu við sögu í leiknum.
Javier Mascherano lék allan leikinn þegar Argentínumenn unnu Rússa 3:2 í Moskvu.
Ísraelsmenn og Norður Írar gerðu 1:1 jafntefli í Belfast. Yossi Benayoun var að venju í liði Ísraelsmanna.
Sviss og Ítalía gerðu markalaust jafntefli í Sviss. Varnarmaðurinn Philipp Degen var í byrjunarliði Sviss.
Íslendingar mættu Slóvökum á Laugardalsvellinum og skildu þjóðirnar jafnar 1:1. Martin Skrtel hefði átt, að öllu jöfnu, átt að vera í liði Slóvaka en hann var ekki valinn í landsliðið vegna þeirra meiðsla sem hann varð fyrir á dögunum. Hann er þó að braggast og lék æfingaleik gegn Oldham með Liverpool í gær. Liverpool vann 2:0 og skoruðu þeir Lucas Leiva og Daniel Ayala. Hér eru myndir úr þeim leik.
Fulltrúi Íslands hjá Liverpool, Guðlaugur Victor Pálsson, lék sinn annan leik með undir 21. árs liði Íslands gegn Tékkum á K.R. vellinum. Tékkar unnu 2:0. Guðlaugur fékk góða dóma í Morgunblaðinu en þar stóð. "Guðlaugur Victor Pálsson sýndi af hverju hann er á mála hjá stórliði Liverpool með mörgum góðum sendingum auk þess að halda ekkert aftur af sér í tæklingum." Guðlaugur í greinilega í góðri æfingu en hann hefur leikið mjög vel með varaliði Liverpool á undirbúningstímablinu.
Sami Hyypia náði þeim mikla áfanga að leika sinn 100. landsleik. Hann var fyrirliði Finna þegar þeir heimsóttu Svía. Svíar höfðu sigur 1:0 og skoraði Johan Elmander, leikmaður Bolton, markið. Aðeins Jari Litmanen, sem var í liðinu, hefur leikið fleiri landsleiki fyrir Finna eða 124. Ari Hjelm hefur leikið 100 leiki eins og Sami.
Þess má að lokum geta að tveir fyrrum leikmenn Liverpool skoruðu fyrir sín þjóðlönd. John Arne Riise skoraði fyrsta mark Norðmanna sem burstuðu skota 4:0. Björn bróðir hans, sem nú er kominn til Fulham, lék með. Milan Baros skoraði eitt marka Tékka sem unnu Belga 3:1.
Hér eru myndir úr landsleikjum kvöldsins af vefsíðu BBC.
TIL BAKA
Landsleikjafréttir
Nokkrir leikmenn Liverpool hituðu fyrir upphaf deildarkeppninnar, núna um helgina, með því að spila með landsliðum sínum. Einn var hér á landi og annar hefði átt að vera hér en var ekki.Þeir Dirk Kuyt og Ryan Babel voru í hollenska landsliðinu sem tók á móti því enska en Glen Johnson, félagi þeirra í Liverpool, var í því enska. Ryan kom inn sem varamaður í hálfleik. Dirk skoraði fyrsta mark leiksins eftir mikil mistök í vörn enska liðsins. Rafael van der Vaart skoraði aftur eftir mistök í vörn enskra. Englendingar gáfust þó ekki upp og Jermaine Defoe, sem kom inn sem varamaður, skoraði tvívegis og tryggði jafntefli 2:2. Emile Heskey, fyrrum leikmaður Liverpool, var í enska liðinu eins og í síðustu leikjum.
Evrópumeistarar Spánverja unnu Makedóna 3:2 á útivelli. Goran Pandev kom Makedónum í 2:0 í fyrri hálfleik. Spánverjar brugðust hart við í upphafi síðari hálfleiks og skoruðu þrjú mörk á fjórum mínútum. Fernando Torres skoraði fyrst á 52. mínútu. Gerard Pique, leikmaður Barcelona, jafnaði á 55. mínútu og einni mínútu síðar skoraði Albert Riera sigurmarkið! Jose Reina stóð í marki Spánverja hluta leiksins. Þeir Alvaro Arbeloa og Xabi Alonso komu við sögu í leiknum.
Javier Mascherano lék allan leikinn þegar Argentínumenn unnu Rússa 3:2 í Moskvu.
Ísraelsmenn og Norður Írar gerðu 1:1 jafntefli í Belfast. Yossi Benayoun var að venju í liði Ísraelsmanna.
Sviss og Ítalía gerðu markalaust jafntefli í Sviss. Varnarmaðurinn Philipp Degen var í byrjunarliði Sviss.
Íslendingar mættu Slóvökum á Laugardalsvellinum og skildu þjóðirnar jafnar 1:1. Martin Skrtel hefði átt, að öllu jöfnu, átt að vera í liði Slóvaka en hann var ekki valinn í landsliðið vegna þeirra meiðsla sem hann varð fyrir á dögunum. Hann er þó að braggast og lék æfingaleik gegn Oldham með Liverpool í gær. Liverpool vann 2:0 og skoruðu þeir Lucas Leiva og Daniel Ayala. Hér eru myndir úr þeim leik.
Fulltrúi Íslands hjá Liverpool, Guðlaugur Victor Pálsson, lék sinn annan leik með undir 21. árs liði Íslands gegn Tékkum á K.R. vellinum. Tékkar unnu 2:0. Guðlaugur fékk góða dóma í Morgunblaðinu en þar stóð. "Guðlaugur Victor Pálsson sýndi af hverju hann er á mála hjá stórliði Liverpool með mörgum góðum sendingum auk þess að halda ekkert aftur af sér í tæklingum." Guðlaugur í greinilega í góðri æfingu en hann hefur leikið mjög vel með varaliði Liverpool á undirbúningstímablinu.
Sami Hyypia náði þeim mikla áfanga að leika sinn 100. landsleik. Hann var fyrirliði Finna þegar þeir heimsóttu Svía. Svíar höfðu sigur 1:0 og skoraði Johan Elmander, leikmaður Bolton, markið. Aðeins Jari Litmanen, sem var í liðinu, hefur leikið fleiri landsleiki fyrir Finna eða 124. Ari Hjelm hefur leikið 100 leiki eins og Sami.
Þess má að lokum geta að tveir fyrrum leikmenn Liverpool skoruðu fyrir sín þjóðlönd. John Arne Riise skoraði fyrsta mark Norðmanna sem burstuðu skota 4:0. Björn bróðir hans, sem nú er kominn til Fulham, lék með. Milan Baros skoraði eitt marka Tékka sem unnu Belga 3:1.
Hér eru myndir úr landsleikjum kvöldsins af vefsíðu BBC.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

