| Ólafur Haukur Tómasson
Spænska liðið Espanyol varð fyrir því hræðilega atviki fyrir nokkrum dögum síðan að fyrirliði liðsins, Dani Jarque lést úr hjartaáfalli í æfingaferð liðsins á Ítalíu. Jarque, sem var aðeins 26 ára gamall, hafði leitt lið sitt í opnunarleik nýs vallar Espanyol vikuna áður þegar liðið mætti Liverpool í æfingaleik.
Yfirlýsing kom frá hönd Liverpool F.C. í kjölfar frétta af andláti Jarque, þar sem Rafael Benítez talaði fyrir hönd Liverpool:
"Þetta er sorgardagur og hugur okkar og bænir eru með fjölskyldu og vinum Daniel Jarque og allra innan raða Espanyol."
Fernando Torres greindi einnig frá sorg sinni yfir andláti Jarque en þeir voru samherjar með u19 ára landsliði Spánar þegar þeir urðu Evrópumeistarar árið 2002:
"Á þessum erfiðu tímum vil ég senda innilegar samúðarkveðjur og sendi allan minn stuðning til fjölskyldu Dani, vina hans og samherja hans hjá Espanyol.
Ég upplifði mörg einstök augnablik með Dani þegar ég spilaði með unglingalandsliðum Spánar. Hann sýndi að hann var einstök persóna og einstakur leikmaður. Ég er miður mín yfir þessum fregnum og hugur minn er með fjölskyldu hans á þessum erfiðu tímum."
Þess má einnig geta að Albert Riera lék með honum áður en hann var keyptur til Liverpool. Liverpool.is sendir samúðarkveðjur til fjölskyldu hans, vina og samherja.
TIL BAKA
Liverpool F.C. hryggir andlát Jarque

Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan