| Sf. Gutt

Adam Hammill farinn

Adam Hammill hefur yfirgefið Liverpool. Þessi efnilegi strákur þykir, eins og svo margir uppeldissynir Liverpool á síðustu árum, ekki nógu góður fyrir aðallið Liverpool. Á dögunum var greint frá því að Barnsley væri búið að gera Liverpool tilboð í Adam og á Liverpoolfc.tv var í dag staðfest að tilboðinu hefði verið tekið. Hann var í láni hjá Barnsley á síðasta keppnistímabili.

Adam Hammill, sem er uppalinn hjá Liverpool, varð Unglingabikarmeistari 2006 og hefur síðustu árin verið talinn einn efnilegasti leikmaður félagsins. Hann hefur nú fengið þann dóm að vera ekki talinn nógu góður fyrir aðallið Liverpool. Hann reynir nú fyrir sér í næst efstu deild og verður gaman að sjá hvað úr honum verður. Ýmsir myndu segja að það séu vonbrigði að einn einn uppeldissonurinn fari með þann dóma að vera ekki nógu góður en kannski er hann það bara ekki.  

  
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan