| Heimir Eyvindarson
TIL BAKA
Hver er Alberto Aquilani?
Eins og sagt er frá hér annars staðar á síðunni hafa félagaskipti Alberto Aquilani frá Roma til Liverpool nú verið staðfest og því er ekki úr vegi að fræðast aðeins um þennan nýjasta leikmann Liverpool.
A
lberto Aquilani er fæddur 7. júlí 1984. Hann vakti fljótt eftirtekt fyrir frábæra knattspyrnuhæfileika og þegar hann var einungis 16 ára buðu bæði Chelsea og Arsenal honum atvinnumannasamning. Aquilani neitaði þessum stórliðum báðum þar sem draumur hans var að spila fyrir aðallið Roma, en þar er hann alinn upp.
Sá draumur rættist tveimur árum síðar, þegar hann lék með aðalliði Roma gegn Torino 10. maí 2003, en þess má geta að framkvæmdastjóri Roma á þessum tíma var sjálfur Fabio Capello.
Tímabilið á eftir, 2003-2004, var Aquilani lánaður til 2. deildar liðsins Triestina og þar öðlaðist hann dýrmæta reynslu enda fastur maður í liðinu þótt ungur væri. Þegar hann síðan sneri aftur til Roma tímabilið 2004-2005 vann hann sér fljótt sæti í byrjunarliðinu og hélt því næstu tvö tímabil.
Fyrir tímabilið 2006-2007 fékk Aquilani úthlutað treyju nr. 8 og var ætlað algert lykilhlutverk í liðinu, en meiðsli urðu til þess að hann var frá keppni svo til allt tímabilið, þannig að ekki varð sami glansinn yfir okkar manni og áætlað var. Aquilani komst ekki aftur á ferðina fyrr en í maí 2007, rétt undir lok tímabilsins.
Aquilani hóf tímabilið 2007-2008 með miklum látum, enda hungraður í að sýna sitt rétta andlit eftir langvarandi fjarveru. Hann skoraði glæsileg mörk með langskotum í tveimur fyrstu leikjum leiktíðarinnar og átti einnig stórleik í viðureign Roma gegn Real Madrid í UEFA keppninni. En þá kom enn eitt áfallið. Í október 2007 meiddist hann aftur illa og var frá keppni fram í janúar 2008.
Síðan þá má segja að saga Aquilani sé ansi lituð meiðslum. Hann meiddist aftur illa í október 2008 og var þá aftur fjarverandi fram í janúar. Næsta áfall reið svo yfir einungis mánuði síðar, í febrúar 2009, en þá meiddist okkar maður og var frá það sem eftir lifði leiktíðarinnar - ef frá eru skildar nokkrar mínútur sem hann lék gegn Arsenal í Meistaradeildinni.
Þrátt fyrir þessa mögnuðu meiðslasögu kappans bauð Roma honum nýjan samning í lok síðustu leiktíðar og hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið 26. maí s.l. En nú er Aquilani semsagt kominn í herbúðir Liverpool og vonandi nær hann að láta ljós sitt skína á Anfield - og umfram allt vonum við að meiðsladraugurinn hafi ekki fylgt honum til Liverpool!
A
lberto Aquilani er fæddur 7. júlí 1984. Hann vakti fljótt eftirtekt fyrir frábæra knattspyrnuhæfileika og þegar hann var einungis 16 ára buðu bæði Chelsea og Arsenal honum atvinnumannasamning. Aquilani neitaði þessum stórliðum báðum þar sem draumur hans var að spila fyrir aðallið Roma, en þar er hann alinn upp. Sá draumur rættist tveimur árum síðar, þegar hann lék með aðalliði Roma gegn Torino 10. maí 2003, en þess má geta að framkvæmdastjóri Roma á þessum tíma var sjálfur Fabio Capello.
Tímabilið á eftir, 2003-2004, var Aquilani lánaður til 2. deildar liðsins Triestina og þar öðlaðist hann dýrmæta reynslu enda fastur maður í liðinu þótt ungur væri. Þegar hann síðan sneri aftur til Roma tímabilið 2004-2005 vann hann sér fljótt sæti í byrjunarliðinu og hélt því næstu tvö tímabil.
Fyrir tímabilið 2006-2007 fékk Aquilani úthlutað treyju nr. 8 og var ætlað algert lykilhlutverk í liðinu, en meiðsli urðu til þess að hann var frá keppni svo til allt tímabilið, þannig að ekki varð sami glansinn yfir okkar manni og áætlað var. Aquilani komst ekki aftur á ferðina fyrr en í maí 2007, rétt undir lok tímabilsins.
Aquilani hóf tímabilið 2007-2008 með miklum látum, enda hungraður í að sýna sitt rétta andlit eftir langvarandi fjarveru. Hann skoraði glæsileg mörk með langskotum í tveimur fyrstu leikjum leiktíðarinnar og átti einnig stórleik í viðureign Roma gegn Real Madrid í UEFA keppninni. En þá kom enn eitt áfallið. Í október 2007 meiddist hann aftur illa og var frá keppni fram í janúar 2008.
Síðan þá má segja að saga Aquilani sé ansi lituð meiðslum. Hann meiddist aftur illa í október 2008 og var þá aftur fjarverandi fram í janúar. Næsta áfall reið svo yfir einungis mánuði síðar, í febrúar 2009, en þá meiddist okkar maður og var frá það sem eftir lifði leiktíðarinnar - ef frá eru skildar nokkrar mínútur sem hann lék gegn Arsenal í Meistaradeildinni.
Þrátt fyrir þessa mögnuðu meiðslasögu kappans bauð Roma honum nýjan samning í lok síðustu leiktíðar og hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið 26. maí s.l. En nú er Aquilani semsagt kominn í herbúðir Liverpool og vonandi nær hann að láta ljós sitt skína á Anfield - og umfram allt vonum við að meiðsladraugurinn hafi ekki fylgt honum til Liverpool!
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

