| HI

Hammill til Barnsley

Liverpool hefur samþykkt tilboð frá Barnsley í miðjumanninn unga Adam Hammill. Þetta upplýsti Simon Davey framkvæmdastjóri Barnsley í dag.

Hammill var lánaður til Barnsley seinni hluta síðasta tímabils og átti þar góðu gengi að fagna. Því ákvað Davey að gera tilboð í leikmanninn og var því tekið. Hins vegar er ekki búið að semja við leikmanninn sjálfan en það er talið nánast formsatriði.

Hammill, sem er 21 árs, er fæddur í Liverpool og uppalinn í akademíunni en hefur verið í láni víða á tíma sínum hjá félaginu. Hann var í liðinu sem vann unglingabikarinn 2006 en hafði skömmu áður verið fluttur á Melwood frá akademíunni. Seinnihluta tímabilsins 2006-2007 var hann í láni hjá skoska liðinu Dunfermline og náði meðal annars að spila skoska bikarúrslitaleikinn. Dunfermline tapaði þá 1:0 fyrir Celtic. Tímabilið 2007-2008 var hann á láni hjá Southampton og svo á síðasta tímabili hjá Blackpool og Barnsley.
 
Adam er búinn að skora tvívegis fyrir varalið Liverpool núna á undirbúningstímabilinu. Hann skoraði fyrst úr víti þegar Liverpool gerði 2:2 jafntefli við Tranmere Rovers. Hann skoraði svo eitt marka Liverpool þegar liðið tapaði 4:3 fyrir Bristol Rovers.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan