| Birgir Jónsson
Umboðsmaður belgíska miðjumannsins Steven Defour hefur greint frá því að Liverpool vilji fá leikmanninn til liðsins. Real Madrid hefur nú bæst í hóp þeirra liða sem vilja fá leikstjórnanda og fyrirliða Standard Liege. Everton og Aston Villa höfðu áður rennt hýru auga til hans.
Ef Real mistekst að fá Xabi Alonso er Defour næsti maður á lista þeirra, en Liverpool líta á leikmanninn sem hugsanlega arftaka Alonso fari hann til Madrídar.
Alberto Aquilani leikmaður Roma er ennþá skotmark Rafa Benítez, en Defour er einnig vel inni í myndinni sérstaklega þar sem búist er við því að Real gangi frá kaupunum á Alonso í þessari viku.
Standard hafa undirstrikað það að þeir hyggist ekki selja stjörnuleikmann sinn en Defour er á öðru máli:
"Ég er með samkomulag við Standard Liege um að ég geti yfirgefið þá fyrir topplið og Liverpool er sannarlega eitt slíkt," var haft eftir leikmanninum í enskum fjölmiðlum.
Og nú hefur umboðsmaður hans, Paul Stefani, staðfest að Liverpool vilji fá Defour.
"Nafn Stevens hefur ekki aðeins verið nefnt hjá Real Madrid heldur einnig hjá Liverpool. Þeir eru einnig að horfa til hans," sagði hann við Daily Mail. "Við venjulegar aðstæður mundi hann vera eitt ár í viðbót hjá Standard, en enginn gæti sagt nei við lið eins og Real og Liverpool og Liege mundu ekki standa í vegi hans."
TIL BAKA
Steven Defour á Anfield?
Umboðsmaður belgíska miðjumannsins Steven Defour hefur greint frá því að Liverpool vilji fá leikmanninn til liðsins. Real Madrid hefur nú bæst í hóp þeirra liða sem vilja fá leikstjórnanda og fyrirliða Standard Liege. Everton og Aston Villa höfðu áður rennt hýru auga til hans.Ef Real mistekst að fá Xabi Alonso er Defour næsti maður á lista þeirra, en Liverpool líta á leikmanninn sem hugsanlega arftaka Alonso fari hann til Madrídar.
Alberto Aquilani leikmaður Roma er ennþá skotmark Rafa Benítez, en Defour er einnig vel inni í myndinni sérstaklega þar sem búist er við því að Real gangi frá kaupunum á Alonso í þessari viku.
Standard hafa undirstrikað það að þeir hyggist ekki selja stjörnuleikmann sinn en Defour er á öðru máli:
"Ég er með samkomulag við Standard Liege um að ég geti yfirgefið þá fyrir topplið og Liverpool er sannarlega eitt slíkt," var haft eftir leikmanninum í enskum fjölmiðlum.
Og nú hefur umboðsmaður hans, Paul Stefani, staðfest að Liverpool vilji fá Defour.
"Nafn Stevens hefur ekki aðeins verið nefnt hjá Real Madrid heldur einnig hjá Liverpool. Þeir eru einnig að horfa til hans," sagði hann við Daily Mail. "Við venjulegar aðstæður mundi hann vera eitt ár í viðbót hjá Standard, en enginn gæti sagt nei við lið eins og Real og Liverpool og Liege mundu ekki standa í vegi hans."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

