L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
29.07.2009 06:07
|
Sf. Gutt
Steven vildi að Íslendingurinn væri fyrirliði!
Guðlaugur Victor Pálsson segir það hafa verið frábæra reynslu að spila við hliðina á Steven Gerrard í æfingaleiknum við Tranmere Rovers um helgina. Leiknum lauk sem kunnugt er með jafntefli 2:2. Steven vildi að Guðlaugur væri fyrirliði Liverpool í leiknum!
"Það var frábær reynsla fyrir mig að spila við hliðina á Steven sem er einn besti miðvallarleikmaður í heimi. Hann leiðbeindi mér allan leikinn og það var mjög gott."
Það vakti nokkra athygli að Guðlaugur Victor var fyrirliði Liverpool í leiknum en ekki Steven Gerrard sjálfur.
"Ég var svolítið taugaóstyrkur yfir því að spila við hliðina á Steven og ekki síst vegna þess að ég var gerður að fyrirliða. Ég spurði hann hvort hann ætlaði ekki að vera fyrirliði en hann sagði mér að ég ætti að leiða liðið og njóta þess. Það fylgir því mikil ábyrgð að vera fyrirliði en mér finnst það gaman og vonandi get ég haldið því áfram á leiktíðinni."
Guðlaugur var næst spurður út í hvernig honum líkaði lífið í Liverpool.
"Mér líkar vel í Liverpool. Borgin er frábær og það er alveg frábær reynsla að spila fyrir hönd þessa félags. Ég get ekki beðið eftir því að keppnistímabilið hefjist og ég vona að okkur eigi eftir að ganga vel."
Þetta er brot úr viðtali sem birtist á Liverpoolfc.tv í gær og eins kom viðtalið í lengri útgáfu á sjónvarpsstöð Liverpool.
Þess má geta að Guðlaugur Victor var fyrirliði Liverpool í gærkvöldi þegar varaliðið vann 1:0 útisigur á utandeildarliði Cambridge United. Argentínumaðurinn Gerardo Bruna skoraði markið með fallegu skoti beint úr aukaspyrnu. Guðlaugur fór af velli í leikhléi.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir