| HI

Eigendur semja um skuld

George Gillette og Tom Hicks, eigendur Liverpool, hafa samið um skuld sem þeir stofnuðu til við Royal Bank of Scotland og Wachovia-bankann þegar þeir keyptu félagið.

Þegar félagið var keypt tóku þeir félagar 290 milljónir punda að láni frá þessum tveimur bönkum, og hvílir sú skuld nú á klúbbnum, sem þarf að greiða af þeim 40 milljónir punda á ári. Samkvæmt fréttum breskra fjölmiðla í dag sömdu þeir um það við Royal Bank of Scotland að greiða 60 milljónir punda af þeirri skuld til baka, en lánasamningur um hinar 230 milljónirnar verður framlengdur um eitt ár.

Samningaviðræður eigendanna við bankana hafa dregist á langinn og var á tímabili óttast að bankarnir myndu gjaldfella lánin. Með þessu er ljóst að það gerist ekki næsta árið í það minnsta.

Vandræði eigendanna með að fjármagna byggingu nýs vallar eru hins vegar ekki á enda. Gillette seldi reyndar 80% hlut sinn í íshokkíliðinu Montreal Canadiens og fréttist hafa birst um að Hicks sé einnig að reyna að selja eitthvað af sínum íþróttaeignum, þ.e. hafnaboltafélagið Texas Rangers og íshokkíliðið Dallas Stars. Liverpool-félagið er svo reyndar sjálft til sölu og vilja þeir 500 milljónir punda fyrir það. Þess má geta að þegar þeir keyptu sjálfir félagið árið 2007 borguðu þeir 174 milljónir punda auk þess að yfirtaka skuldir upp á 45 milljónir.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan