| HI

Skrtel frá í þrjár vikur, El Zhar í mánuð

Martin Skrtel, sem meiddist á aftanverðu læri í æfingaleik gegn tælenska landsliðinu á miðvikudag verður frá æfingum í þrjár vikur vegna meiðslanna. Þetta þýðir að varnarjaxlinn er á mörkunum með að ná sér heilum fyrir fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar, gegn Tottenham 16. ágúst.

Skrtel fór strax til Liverpool eftir að hann meiddist og við skoðun kom í ljós tognun í aftanverðu lærinu.

Nabil El Zhar, sem meiddist í þessum sama leik, verður hins vegar frá í mánuð vegna skemmda í liðböndum í hné.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan