| Ólafur Haukur Tómasson

Kuyt ánægður með kaup á Johnson

Liverpool freistar þess nú að enda einu sæti ofar í ensku Úrvalsdeildinni á næstu leiktíð og hefur félagið keypt enska hægri bakvörðinn Glen Johnson, sem lék sinn fyrsta leik fyrir Liverpool í æfingaleik gegn St Gallen síðastliðinn miðvikudag.

Dirk Kuyt sem leikur á hægri vængnum hjá Liverpool mun væntanlega leika mikið með Glen á næstu leiktíð og telur hann að nýi samherji sinn muni slá í gegn hjá Liverpool og gæti aðstoðað liðið í að enda nítján ára bið eftir Englandsmeistaratitlinum.

"Á síðustu leiktíð lékum við mjög vel. Því miður þá unnum við hins vegar ekki titla en ef við getum haldið liðinu saman þá gæti koma Glen Johnson til liðsins þýtt að við getum vonandi endað einu sæti ofar. Hann hefur nú þegar sýnt að hann er góður leikmaður í ensku Úrvalsdeildinni og í enska landsliðinu." sagði Dirk Kuyt.

Kuyt átti frábært tímabil á síðustu leiktíð og skoraði hann fimmtán mörk og var einn allra mikilvægasti leikmaður liðsins á leiktíðinni. Hann samþykkti tveggja ára framlengingu á samningi sínum við Liverpool og er hann tilbúinn til að bæta sig enn meira á næstu árum.

"Allir leikmenn verða að reyna að gera betur en á síðustu leiktíð. Það er mitt markmið. Ég var ánægður með það hvernig ég lék á síðustu leiktíð en ef við ætlum að ná árangri þá verðum við að gera betur. Við verðum sýna metnað, þetta geta orðið spennandi tímar." bætti Hollendingurinn við.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan