| Birgir Jónsson

Glen Johnson í viðtali

Glen Johnson var kynntur fyrir fréttamönnum seinni partinn í dag og svaraði nokkrum spurningum.

Það voru önnur lið sem höfðu áhuga, svo hvers vegna Liverpool?

Þetta er augljóslega frábær klúbbur með glæsilega sögu og ég verið veikur fyrir Liverpool.
 
Hvaðan kemur það?
 
Það er dálítið spaugilegt að segja frá því að ég er frá Suður-London en fyrsti fótboltabúningurinn sem ég eignaðist vera Liverpool, ekki spurja af hverju...
 
Hversu nálægt varstu því að ganga til liðs við Chelsea að nýju?

Í alvöru talað, langt frá því. Ég talaði við Rafa og vissi um leið hvert mig langaði að fara, svo það var auðveld ákvörðun.
 
Hvað var það sem heillaði þig?

Rafa var ákafur í að hjálpa mér að bæta mig og umbreyta mér í þann leikmann sem ég get orðið.

Hversu mikið vissiru um áhuga annara liða?

Portsmouth vita augljóslega mun meira en ég um það en samkvæmt blöðunum var mikill áhugi. En þegar ég heyrði um Liverpool var það auðveld ákvörðun.

Hversu mikilvægt var það fyrir þig að ljúka þessu svona snemma sumars?

Því fyrr því betra, svo ég gæti reynt að slaka á og njóta því sem eftir var sumars áður en undirbúningstímabilið hæfist.

Líður þér eins og þú þurfir að sanna þig eftir að hafa farið frá Chelsea?

Þegar ég yfirgaf Chelsea þurfti ég að spila leiki, og að sjálfsögðu er ég mjög þakklátur Portsmouth fyrir að hafa veitt mér það tækifæri. Ég spilaði í hverri viku og mér finnst ég hafa sýnt fólki loksins hvað ég gat gert. Nú hef ég fengið þetta tækifæri og ég vil reyna að gera það sem ég gerði á síðasta tímabili og bæta mig sem leikmaður.

Þú hlýtur að hafa metnað fyrir landsliðinu nú þegar það styttist í Heimsmeistaramótið?

Já, auðvitað er þetta stórt ár fyrir mig með landsliðinu en það sem ég einbeiti mér fyrst og fremst að er að standa mig eins vel og ég get fyrir Liverpool.  

Hversu stór áskorun er næsta tímabil fyrir Liverpool liðið?

Við höfum frábæru liði á að skipa og frábærum hópi. Við munum reyna að gera andstæðingum okkar eins erfitt fyrir og mögulegt er.

Liðið hafnaði í öðru sæti á eftir Manchester United. Finnst þér að þið getið bætt það nú?

Allur hópurinn leitast eftir að bæta sig. Ef við getum náð í fleiri stig og gert færri mistök þá getum við hugsanlega bætt árangurinn frá því í fyrra.
 
Hversu spenntur ertu fyrir þessari nýju áskorun?

Ég er yfir mig ánægður. Ég er kominn til að vinna bikara. Ég þekkti Carra og Stevie og nokkra strákana eftir að hafa spilað gegn þeim. Ég hlakka mjög mikið til. 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan