| Birgir Jónsson

Af hverju valdi ég Liverpool?

Glen Johnson útskýrði í viðtali í dag hvernig orðspor Liverpool í knattspyrnuheiminum þýddi að ekkert annað lið gæti keppt við það um undirskrift hans.

Hægri bakvörðurinn var orðaður við önnur lið en sagði að það hefði ekki nein samkeppni verið eftir að Rafa Benítez bauð honum að ganga til liðs við eitt stærsta lið heims.

"Ég hafði verið áður hjá Chelsea og þar upplifði ég góða tíma og slæma en þegar lið eins og Liverpool er á eftir þér er ákvörðunin ekki erfið," sagði Johnson við liverpoolfc.tv.

"Þetta er frábær klúbbur, einn sá stærsti í heimi. Hann hefur glæsilega sögu og ég vildi verða hluti þess."

Hárin aftan á hálsinum fara að rísa þegar maður kemur á Anfield og heyrir You´ll never walk alone, meira að segja þótt þú spilir ekki fyrir Liverpool, svo ég get ekki ímyndað mér hvernig það verður að klæðast treyjunni í fyrsta skipti."
 
Johnson var kynntur opinberlega fyrir fjölmiðlum heimsins seinni partinn í dag þar sem hann segir frá því að takmark hans hjá Liverpool sé að vinna titilinn í fyrsta sinn síðan árið 1990.
 
"Við höfum nokkra frábæra leikmenn og ég vildi koma hingað og hjálpa liðinu að vinna deildina. Strákarnir gerðu frábærlega á síðasta ári. Við getum vonandi náð í aðeins fleiri stig á þessari leiktíð og nappað titlinum af Manchester United. Við viljum fara eins langt og við getum í öllum keppnum en allir leikmennirnir vilja vinna deildina og það væri frábær byrjun."

Johnson var kjörinn besti hægri bakvörður deildarinnar af leikmannasamtökunum á síðustu leiktíð en enski landsliðsmaðurinn segir að hann muni enn bæta sig. 

"Ég get auðvitað bætt mig, allir leikmenn geta það. Ég vil bæta alla þætti míns leiks. Rafa hefur sagt mér að hann vilji sjá meira af því sem ég sýndi á síðustu leiktíð, en hann vill einnig að ég bæti mig. Við munum vinna stíft saman að því. Ég er hér til að gera mitt besta." 
 
Johnson kom til æfinga á Melwood í fyrsta sinn í gær þar sem hann var kynntur fyrir nýju liðsfélögunum.

"Gærdagurinn var fyrsti dagurinn minn og allir leikmennirnir og starfsfólkið lét mér líða eins og ég væri velkominn, þannig að það voru góðir tímar. Ég þekkti Stevie og Carra áður en ég hitti um 60 leikmenn í gær! Ég tók í sömu hendurnar um það bil fjórum sinnum og kynnti mig! Það er mikið til að innbyrða í einu og strákarnir voru augljóslega að fíflast og gera grín að því. En allir létu mér líða eins og ég væri virkilega velkominn og það er frábært að vera hérna."

Johnson sagði einnig frá samtölum sínum við fyrrum leikmenn Liverpool, Peter Crouch og Jermaine Pennant sem báðir léku með honum hjá Portsmouth á síðustu leiktíð.
 
"Peter og Jermaine sögðu að þetta væri stórkostlegur klúbbur, en þeir þurftu ekkert að gera það því ég vissi það fyrir. Þeir sögðu mér að njóta hverrar mínútu," sagði þessi nýji Liverpoolmaður að lokum. 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan