| Ólafur Haukur Tómasson
Þeir Jay Spearing og Stephen Darby hafa samþykkt að framlengja samning sína við Liverpool um þrjú ár en þeir áttu báðir aðeins eitt ár eftir á fyrri samningum sínum við félagið.
Báðir leikmennirnir eru uppaldir hjá félaginu og léku þeir báðir sína fyrstu leiki fyrir aðalliðið á síðustu leiktíð. Spearing lék gegn PSV og Real Madrid í Meistaradeildinni en Darby lék gegn Tottenham í Deildarbikarnum og PSV í Meistaradeildinni.
Báðir leikmennirnir eru mikið efni og reikna margir með að þeir fái enn fleiri tækifæri á komandi leiktíð. Jay Spearing sem er tvítugur útskrifaðist úr Akademíunni og yfir á Melwood sumarið 2007 eftir að hafa verið fyrirliði unglingaliðsins. Hann leikur sem miðjumaður. Hann er alls ekki hávaxinn en bætir það upp með ákveðni, styrk og krafti.
Hægri bakvörðurinn Stephen Darby sem einnig er tvítugur útskrifaðist úr Akademíunni og yfir á Melwood sumarið 2006. Hann var fyrirliði varaliðsins tímabilið á undan Spearing og hann var einnig fyrirliði varaliðsins síðustu tvö tímabil.
Þeir slást nú í hóp með þeim Steven Gerrard, Fernando Torres, Dirk Kuyt, Daniel Agger og Yossi Benayoun sem allir hafa framlengt samninga sína við Liverpool.
Á myndinni eru þeir Jay og Stephen eftir Evrópuleikinn við PSV Eindhoven. Á milli þeirra er Martin Kelly.
TIL BAKA
Spearing og Darby framlengja
Þeir Jay Spearing og Stephen Darby hafa samþykkt að framlengja samning sína við Liverpool um þrjú ár en þeir áttu báðir aðeins eitt ár eftir á fyrri samningum sínum við félagið.Báðir leikmennirnir eru uppaldir hjá félaginu og léku þeir báðir sína fyrstu leiki fyrir aðalliðið á síðustu leiktíð. Spearing lék gegn PSV og Real Madrid í Meistaradeildinni en Darby lék gegn Tottenham í Deildarbikarnum og PSV í Meistaradeildinni.
Báðir leikmennirnir eru mikið efni og reikna margir með að þeir fái enn fleiri tækifæri á komandi leiktíð. Jay Spearing sem er tvítugur útskrifaðist úr Akademíunni og yfir á Melwood sumarið 2007 eftir að hafa verið fyrirliði unglingaliðsins. Hann leikur sem miðjumaður. Hann er alls ekki hávaxinn en bætir það upp með ákveðni, styrk og krafti.
Hægri bakvörðurinn Stephen Darby sem einnig er tvítugur útskrifaðist úr Akademíunni og yfir á Melwood sumarið 2006. Hann var fyrirliði varaliðsins tímabilið á undan Spearing og hann var einnig fyrirliði varaliðsins síðustu tvö tímabil.
Þeir slást nú í hóp með þeim Steven Gerrard, Fernando Torres, Dirk Kuyt, Daniel Agger og Yossi Benayoun sem allir hafa framlengt samninga sína við Liverpool.
Á myndinni eru þeir Jay og Stephen eftir Evrópuleikinn við PSV Eindhoven. Á milli þeirra er Martin Kelly.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

