| Ólafur Haukur Tómasson
Í gær hófst undirbúningstímabilið hjá nokkrum leikmönnum Liverpool og þá var fyrsta æfingin. Á æfingunni voru Spánverjarnir ungu Daniel Pacheco, Mikel San Jose, Daniel Ayala, Ungverjarnir Krisztian Nemeth og Peter Gulacsi sem og heimamaðurinn Martin Kelly en þeir voru á Melwood ásamt mörgum af eldri og reyndari leikmönnum liðsins.
Knattspyrnustjórinn Rafael Benítez skorar á ungliðana að nýta tækifæri sín til hins ítrasta og vinna sér inn sæti í aðalliðinu fyrir komandi leiktíð.
"Við höfum nú þegar rætt við þá Pacheco, Ayala og San Jose, og við höfum sagt þeim að þetta velti allt á þeim. Þeir æfa nú með aðalliðinu og þetta er þeirra tækifæri til að sýna hvað þeir geta fyrir komandi leiktíð." sagði Benítez.
Ungu leikmenn liðsins hafa gjarnan fengið tækifæri á undirbúningstímabilunum og á því síðasta fengu þeir Pacheco, Stephen Darby, David N'Gog, Jay Spearing, Emiliano Insua og fleiri tækifæri, nokkrir þeirra fengu svo sæti í aðalliðshópnum á síðustu leiktíð.
Þess má einnig geta að Liverpool hefur fest kaup á nokkrum ungum leikmönnum fyrir næsta tímabil og þeir nýjustu í þeim hópi eru Frakkinn Chris Mavinga og Daninn Nikolaj Kohlert, sem mun að sögn skrifa undir samning við Liverpool í næstu viku.
Rafael Benítez hefur lengi reynt að byggja upp öflugt unglingastarf og hefur hann í vor tekið unglingastarf félagsins í gegn og fengið marga reynda og góða þjálfara til að leiðbeina framtíðarstjörnum félagsins. Einnig hefur hann verið duglegur við að leita eftir framtíðarstjörnum fótboltans um allan heim og hefur hann meðal annars fundið leikmenn á borð við Pacheco, Nemeth, Insua, Gerardo Bruna og fleiri frábæra leikmenn sem gætu komið til með að vera framtíðarleikmenn fyrir Liverpool.
TIL BAKA
Rafa skorar á ungu leikmennina
Í gær hófst undirbúningstímabilið hjá nokkrum leikmönnum Liverpool og þá var fyrsta æfingin. Á æfingunni voru Spánverjarnir ungu Daniel Pacheco, Mikel San Jose, Daniel Ayala, Ungverjarnir Krisztian Nemeth og Peter Gulacsi sem og heimamaðurinn Martin Kelly en þeir voru á Melwood ásamt mörgum af eldri og reyndari leikmönnum liðsins.Knattspyrnustjórinn Rafael Benítez skorar á ungliðana að nýta tækifæri sín til hins ítrasta og vinna sér inn sæti í aðalliðinu fyrir komandi leiktíð.
"Við höfum nú þegar rætt við þá Pacheco, Ayala og San Jose, og við höfum sagt þeim að þetta velti allt á þeim. Þeir æfa nú með aðalliðinu og þetta er þeirra tækifæri til að sýna hvað þeir geta fyrir komandi leiktíð." sagði Benítez.
Ungu leikmenn liðsins hafa gjarnan fengið tækifæri á undirbúningstímabilunum og á því síðasta fengu þeir Pacheco, Stephen Darby, David N'Gog, Jay Spearing, Emiliano Insua og fleiri tækifæri, nokkrir þeirra fengu svo sæti í aðalliðshópnum á síðustu leiktíð.
Þess má einnig geta að Liverpool hefur fest kaup á nokkrum ungum leikmönnum fyrir næsta tímabil og þeir nýjustu í þeim hópi eru Frakkinn Chris Mavinga og Daninn Nikolaj Kohlert, sem mun að sögn skrifa undir samning við Liverpool í næstu viku.
Rafael Benítez hefur lengi reynt að byggja upp öflugt unglingastarf og hefur hann í vor tekið unglingastarf félagsins í gegn og fengið marga reynda og góða þjálfara til að leiðbeina framtíðarstjörnum félagsins. Einnig hefur hann verið duglegur við að leita eftir framtíðarstjörnum fótboltans um allan heim og hefur hann meðal annars fundið leikmenn á borð við Pacheco, Nemeth, Insua, Gerardo Bruna og fleiri frábæra leikmenn sem gætu komið til með að vera framtíðarleikmenn fyrir Liverpool.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

