| Grétar Magnússon
Glen Johnson skrifaði í dag undir fjögurra ára samning við Liverpool og eru það fyrstu kaup félagsins í sumar.
Ferill hans hófst undir stjórn Harry Redknapp hjá West Ham en eftir 15 leiki hjá félaginu og stutta lánsdvöl hjá Millwall varð hann fyrstu kaup Romans Abramovich eftir að hann keypti Chelsea árið 2003. Í ágúst sama ár spilaði hann sinn fyrsta leik fyrir Chelsea einmitt á Anfield gegn Liverpool. Hann spilaði sinn fyrsta landsleik þegar hann kom inná sem varamaður fyrir Gary Neville gegn Danmörku þrem mánuðum síðar.
Johnson hefur unnið nokkra titla á sínum ferli, hann varð Englands- og Deildarbikarmeistari með Chelsea árið 2005 en árið 2006 var hann lánaður til Portsmouth. Ári síðar keypti suðurstrandarliðið hann og náði hann að verða FA Bikarmeistari með liðinu árið 2008.
Johnson var valinn í úrvalslið ensku Úrvalsdeildarinnar á nýliðnu tímabili og markið sem hann skoraði með vinstri fæti gegn Hull þann 22. nóvember í fyrra var einnig valið mark ársins í þættinum Match of the Day.
Árið 2007 setti Johnson á fót Glen Johnson Soccer School í Dartford og geta börn á aldrinum fjögurra til 16 ára sótt skólann.
Rafa Benítez var skiljanlega ánægður með kaupin og sagði þetta í viðtali við opinbera heimasíðu félagsins:
Af hverju ákvaðst þú að fá Glen Johnson til liðs við félagið ?
,,Við vorum að hugsa um að fá gæðaleikmenn til félagsins - það er það fyrsta sem við horfum til. Hann er einnig enskur og það er mikilvægt fyrir Meistaradeildina vegna reglna þar. Við vorum semsagt að leitast við að bæta liðið og Johnson er mjög góður leikmaður sem mun gera það."
Hvað mun hann færa félaginu ?
,,Hann var mikilvægur leikmaður hjá Chelsea og á síðasta tímabili með Portsmouth hefur hann bætt sig og er mun betri. Eitt það besta við hann er hugarfarið - það er mjög gott. Hann er sigurvegari. Hann hafði góð áhrif á mig þegar við töluðum saman. Hann vill bæta sig"
Er hægt að setja samansemmerki á milli verðmiða og gæða í þessu tilfelli ?
,,Við vissum að markaðurinn myndi vera erfiður í sumar og sumt hefur auðvitað verið hrein bilun. Manchester City og Chelsea eru þarna - og þau voru að bjóða í hann. við þurftum að vera fljótir að bregðast við og félagið gerði það. Þetta snerist svo um það hvar leikmaðurinn vildi spila, hjá okkur, City eða Chelsea og hann valdi okkur. Það var strax ljóst eftir samtöl við hann að hann vildi spila fyrir Liverpool."
Hvað þýðir þetta fyrir Alvaro Arbeloa ?
,,Arbeloa var góður á síðasta tímabili. Hann á hinsvegar bara eitt ár eftir af samningi sínum. Við buðum honum framlengingu og við erum að ræða saman. Hann er okkar leikmaður en ef það kemur gott tilboð þá munum við skoða það. Það eru tvö eða þrjú félög að spyrjast fyrir um hann. Við myndum vilja hafa hann áfram en hann veit að samkeppnin er hörð."
Mega stuðningsmenn félagsins búast við fleiri kaupum ?
,,Við erum að vinna í því að kaupa nýja leikmenn en við erum ánægðir með þann hóp sem við erum með um þessar mundir. Við erum alltaf að hugsa um að bæta liðið og í Johnson höfum við bætt okkur. Eins og ég hef áður sagt, þá getum við keypt annan leikmann án þess að þurfa að selja. nú verðum við bara að bíða."
TIL BAKA
Glen Johnson skrifar undir
Glen Johnson skrifaði í dag undir fjögurra ára samning við Liverpool og eru það fyrstu kaup félagsins í sumar.Ferill hans hófst undir stjórn Harry Redknapp hjá West Ham en eftir 15 leiki hjá félaginu og stutta lánsdvöl hjá Millwall varð hann fyrstu kaup Romans Abramovich eftir að hann keypti Chelsea árið 2003. Í ágúst sama ár spilaði hann sinn fyrsta leik fyrir Chelsea einmitt á Anfield gegn Liverpool. Hann spilaði sinn fyrsta landsleik þegar hann kom inná sem varamaður fyrir Gary Neville gegn Danmörku þrem mánuðum síðar.
Johnson hefur unnið nokkra titla á sínum ferli, hann varð Englands- og Deildarbikarmeistari með Chelsea árið 2005 en árið 2006 var hann lánaður til Portsmouth. Ári síðar keypti suðurstrandarliðið hann og náði hann að verða FA Bikarmeistari með liðinu árið 2008.
Johnson var valinn í úrvalslið ensku Úrvalsdeildarinnar á nýliðnu tímabili og markið sem hann skoraði með vinstri fæti gegn Hull þann 22. nóvember í fyrra var einnig valið mark ársins í þættinum Match of the Day.
Árið 2007 setti Johnson á fót Glen Johnson Soccer School í Dartford og geta börn á aldrinum fjögurra til 16 ára sótt skólann.
Rafa Benítez var skiljanlega ánægður með kaupin og sagði þetta í viðtali við opinbera heimasíðu félagsins:
Af hverju ákvaðst þú að fá Glen Johnson til liðs við félagið ?
,,Við vorum að hugsa um að fá gæðaleikmenn til félagsins - það er það fyrsta sem við horfum til. Hann er einnig enskur og það er mikilvægt fyrir Meistaradeildina vegna reglna þar. Við vorum semsagt að leitast við að bæta liðið og Johnson er mjög góður leikmaður sem mun gera það."
Hvað mun hann færa félaginu ?
,,Hann var mikilvægur leikmaður hjá Chelsea og á síðasta tímabili með Portsmouth hefur hann bætt sig og er mun betri. Eitt það besta við hann er hugarfarið - það er mjög gott. Hann er sigurvegari. Hann hafði góð áhrif á mig þegar við töluðum saman. Hann vill bæta sig"
Er hægt að setja samansemmerki á milli verðmiða og gæða í þessu tilfelli ?
,,Við vissum að markaðurinn myndi vera erfiður í sumar og sumt hefur auðvitað verið hrein bilun. Manchester City og Chelsea eru þarna - og þau voru að bjóða í hann. við þurftum að vera fljótir að bregðast við og félagið gerði það. Þetta snerist svo um það hvar leikmaðurinn vildi spila, hjá okkur, City eða Chelsea og hann valdi okkur. Það var strax ljóst eftir samtöl við hann að hann vildi spila fyrir Liverpool."
Hvað þýðir þetta fyrir Alvaro Arbeloa ?
,,Arbeloa var góður á síðasta tímabili. Hann á hinsvegar bara eitt ár eftir af samningi sínum. Við buðum honum framlengingu og við erum að ræða saman. Hann er okkar leikmaður en ef það kemur gott tilboð þá munum við skoða það. Það eru tvö eða þrjú félög að spyrjast fyrir um hann. Við myndum vilja hafa hann áfram en hann veit að samkeppnin er hörð."
Mega stuðningsmenn félagsins búast við fleiri kaupum ?
,,Við erum að vinna í því að kaupa nýja leikmenn en við erum ánægðir með þann hóp sem við erum með um þessar mundir. Við erum alltaf að hugsa um að bæta liðið og í Johnson höfum við bætt okkur. Eins og ég hef áður sagt, þá getum við keypt annan leikmann án þess að þurfa að selja. nú verðum við bara að bíða."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

