| Sf. Gutt
Varalið Liverpool hefur nú fært sig um set og mun leika heimaleiki sína í Liverpool á næsta keppnistímabili. Varaliðið hefur síðustu tvö keppnistímabil leikið á Helliwell Jones leikvanginum í Warrington sem er útborg Liverpool. Áður lék liðið á Deva leikvanginum í Chester og Racecourse Ground heimavelli Wrexham.
Nú er liðið komið heim ef svo má segja og það leikur heimaleiki sína á Prenton Park sem er heimavöllur Tranmere Rovers. Tranmere hefur leikið heimaleiki sína á Prenton Park frá árinu 1912. Leikvangurinn tekur 16.567 áhorfendur í sæti.
Þó nokkur ár eru liðin frá því varaliðið spilaði heimaleiki sína í Liverpool og munu stuðningsmenn liðsins vera mjög ánægðir með að liðið spili nú aftur í heimaborg sinni. Það verður styttra að fara á heimaleikina og aðsókn ætti að aukast. Svo bætist við að John Barnes tók við stöðu framkvæmdastjóra hjá Tranmere fyrr í sumar og í kjölfarið er búist við aukinni samvinnu félaganna.
Mikil ánægja er, hjá forráðamönnum Tranmere Rovers, yfir því að fá varalið Livrerpool til sín og ekki spillir fyrir að Liverpool ætlar að spila æfingaleik við granna sína þann 24. júlí. John Barnes er farinn að hlakka til leiksins. "Vonandi munu stuðningsmenn beggja liða hafa gaman af leiknum. Ég hlakka til að bjóða gamla félagið mitt velkomið til Prenton Park áður en ný leiktíð hefst."
Hér eru upplýsingar um Prenton Park af heimasíðu Tranmere Rovers.
TIL BAKA
Varalið Liverpool skiptir um heimavöll
Varalið Liverpool hefur nú fært sig um set og mun leika heimaleiki sína í Liverpool á næsta keppnistímabili. Varaliðið hefur síðustu tvö keppnistímabil leikið á Helliwell Jones leikvanginum í Warrington sem er útborg Liverpool. Áður lék liðið á Deva leikvanginum í Chester og Racecourse Ground heimavelli Wrexham. Nú er liðið komið heim ef svo má segja og það leikur heimaleiki sína á Prenton Park sem er heimavöllur Tranmere Rovers. Tranmere hefur leikið heimaleiki sína á Prenton Park frá árinu 1912. Leikvangurinn tekur 16.567 áhorfendur í sæti.
Þó nokkur ár eru liðin frá því varaliðið spilaði heimaleiki sína í Liverpool og munu stuðningsmenn liðsins vera mjög ánægðir með að liðið spili nú aftur í heimaborg sinni. Það verður styttra að fara á heimaleikina og aðsókn ætti að aukast. Svo bætist við að John Barnes tók við stöðu framkvæmdastjóra hjá Tranmere fyrr í sumar og í kjölfarið er búist við aukinni samvinnu félaganna.
Mikil ánægja er, hjá forráðamönnum Tranmere Rovers, yfir því að fá varalið Livrerpool til sín og ekki spillir fyrir að Liverpool ætlar að spila æfingaleik við granna sína þann 24. júlí. John Barnes er farinn að hlakka til leiksins. "Vonandi munu stuðningsmenn beggja liða hafa gaman af leiknum. Ég hlakka til að bjóða gamla félagið mitt velkomið til Prenton Park áður en ný leiktíð hefst."
Hér eru upplýsingar um Prenton Park af heimasíðu Tranmere Rovers.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

