| Sf. Gutt
Bandaríkjamenn unnu einn óvæntasta landsliðssigur í langan tíma þegar þeir unnu Spánverja í undanúrslitium Álfukeppninnar í dag. Spánverjar ná því ekki að bæta Álfutitilinum við Evróputitilinn sem þeir unnu í fyrra.
Spánverjar náðu sér aldrei almennilega á strik gegn ákveðnum leikmönnum Mið Ameríkumeistaranna og máttu þola tap eftir 35 leiki án taps. Jozy Altidore kom Bandaríkjamönnum yfir á 27. mínútu eftir að hann lék á varnarmann Spánverja og skoraði úr vítateignum. Fernando Torres var nærri því að jafna undir lok fyrri hálfleiks en Tim Howard varði frá honum. Spánverjar voru grimmari eftir því sem leið á síðari hálfleikinn en vörn Bandaríkjamanna hélt og þegar sextán mínútur voru eftir gerði Clint Dempsey út um leikinn þegar hann skoraði frá markteig eftir mikil mistök varnarmanns Spánverja. Bandaríkjamenn unnu því og var sigurinn sannarlega óvæntur.
Fernando Torres, Xabi Alonso og Alvaro Arbeloa voru í byrjunarliði Spánverja. Jose Reina og Alvaro Arbeloa komu ekki við sögu. Spánverjar eru þó ekki komnir í sumarfrí því eiga að leika um þriðja og fjórða sætið í keppninnni á laugardaginn.
TIL BAKA
Af Álfukeppninni
Bandaríkjamenn unnu einn óvæntasta landsliðssigur í langan tíma þegar þeir unnu Spánverja í undanúrslitium Álfukeppninnar í dag. Spánverjar ná því ekki að bæta Álfutitilinum við Evróputitilinn sem þeir unnu í fyrra.Spánverjar náðu sér aldrei almennilega á strik gegn ákveðnum leikmönnum Mið Ameríkumeistaranna og máttu þola tap eftir 35 leiki án taps. Jozy Altidore kom Bandaríkjamönnum yfir á 27. mínútu eftir að hann lék á varnarmann Spánverja og skoraði úr vítateignum. Fernando Torres var nærri því að jafna undir lok fyrri hálfleiks en Tim Howard varði frá honum. Spánverjar voru grimmari eftir því sem leið á síðari hálfleikinn en vörn Bandaríkjamanna hélt og þegar sextán mínútur voru eftir gerði Clint Dempsey út um leikinn þegar hann skoraði frá markteig eftir mikil mistök varnarmanns Spánverja. Bandaríkjamenn unnu því og var sigurinn sannarlega óvæntur.
Fernando Torres, Xabi Alonso og Alvaro Arbeloa voru í byrjunarliði Spánverja. Jose Reina og Alvaro Arbeloa komu ekki við sögu. Spánverjar eru þó ekki komnir í sumarfrí því eiga að leika um þriðja og fjórða sætið í keppninnni á laugardaginn.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

