| Heimir Eyvindarson
TIL BAKA
Ekki bera mig saman við Ray Clemence
Pepe Reina segist eiga langt í land með að vera þess verðugur að vera borinn saman við goðsögnina Ray Clemence.
Þessi geðþekki spænski markvörður hefur slegið slatta af metum síðan hann kom til Liverpool frá Villareal sumarið 2005, en hann segist þó ekki enn eiga skilið að vera líkt við Anfield hetjuna Clemence.

,,Það er í fyrsta lagi alltaf erfitt að bera saman lið frá ólíkum tíma, ég er ekki viss um að það sé yfirleitt marktækur samanburður. Ég er ekki einu sinni klár á hvaða kerfi Liverpool liðið spilaði á þessum tíma, eða hvort lið voru almennt sókndjarfari eða varnarsinnaðri á þeim tíma sem hann stóð milli stanganna hjá Liverpool. Það er svo ótal margt sem þarf að taka með í reikninginn þegar svona samanburður er gerður."
,,Það eina sem ég veit er að Ray Clemence er líklega albesti markvörður sem hefur klæðst Liverpool búningnum og ef ég næ helmingnum af því sem hann afrekaði á sínum tíma þá er bjart framundan hjá mér og félaginu."
Í aprílmánuði varð Reina sá markvörður í sögu Liverpool sem var fljótastur að halda hreinu í 100 leikjum, en því takmarki náði Spánverjinn í 197 leikjum. Gamla metið átti Ray Clemence, en það tók hann 200 leiki að halda markinu hreinu 100 sinnum.
Þegar Reina sló þetta met urðu margir til þess að hylla hann og m.a. lét Rafa Benítez hafa eftir sér við þetta tækifæri að Reina væri besti markvörður ensku úrvalsdeildarinnar.
,,Ég er að sjálfsögðu mjög ánægður með allt hrósið sem ég hef fengið. Mér finnst ég hafa bætt mig heilmikið á þessum fjórum árum sem ég hef verið hjá Liverpool, en ég er aðeins 26 ára gamall þannig að ég á nóg eftir - bæði ólært og ógert. Vonandi verður það hjá Liverpool."
Reina gleymir heldur ekki þætti liðsfélaga sinna í árangri sínum.
,,Ég er himinlifandi yfir því að vera nú kominn í sögubækur Liverpool liðsins, við hlið Ray Clemence, en það er að sjálfsögðu ekki mér einum að þakka."
,,Liðsfélagar mínir, og þá sérstaklega varnarmennirnir, eiga auðvitað mjög stóran þátt í því hversu vel mér hefur gengið. Þegar þeir sem spila fyrir framan mig standa sig vel, þá er allt miklu auðveldara hjá mér."
,,Þegar við vinnum og náum að halda hreinu þá kætast menn eins og ég, Carra og Arbeloa sérstaklega, því það er jú okkar hlutverk að halda markinu hreinu. Á sama hátt og sóknarmenn reyna alltaf að skora er það markmið varnarmanna og markvarða að halda hreinu. Það er mun sætara fyrir okkur að vinna 1-0 en 2-1."
Þessi geðþekki spænski markvörður hefur slegið slatta af metum síðan hann kom til Liverpool frá Villareal sumarið 2005, en hann segist þó ekki enn eiga skilið að vera líkt við Anfield hetjuna Clemence.

,,Það er í fyrsta lagi alltaf erfitt að bera saman lið frá ólíkum tíma, ég er ekki viss um að það sé yfirleitt marktækur samanburður. Ég er ekki einu sinni klár á hvaða kerfi Liverpool liðið spilaði á þessum tíma, eða hvort lið voru almennt sókndjarfari eða varnarsinnaðri á þeim tíma sem hann stóð milli stanganna hjá Liverpool. Það er svo ótal margt sem þarf að taka með í reikninginn þegar svona samanburður er gerður."
,,Það eina sem ég veit er að Ray Clemence er líklega albesti markvörður sem hefur klæðst Liverpool búningnum og ef ég næ helmingnum af því sem hann afrekaði á sínum tíma þá er bjart framundan hjá mér og félaginu."
Í aprílmánuði varð Reina sá markvörður í sögu Liverpool sem var fljótastur að halda hreinu í 100 leikjum, en því takmarki náði Spánverjinn í 197 leikjum. Gamla metið átti Ray Clemence, en það tók hann 200 leiki að halda markinu hreinu 100 sinnum.
Þegar Reina sló þetta met urðu margir til þess að hylla hann og m.a. lét Rafa Benítez hafa eftir sér við þetta tækifæri að Reina væri besti markvörður ensku úrvalsdeildarinnar.
,,Ég er að sjálfsögðu mjög ánægður með allt hrósið sem ég hef fengið. Mér finnst ég hafa bætt mig heilmikið á þessum fjórum árum sem ég hef verið hjá Liverpool, en ég er aðeins 26 ára gamall þannig að ég á nóg eftir - bæði ólært og ógert. Vonandi verður það hjá Liverpool." Reina gleymir heldur ekki þætti liðsfélaga sinna í árangri sínum.
,,Ég er himinlifandi yfir því að vera nú kominn í sögubækur Liverpool liðsins, við hlið Ray Clemence, en það er að sjálfsögðu ekki mér einum að þakka."
,,Liðsfélagar mínir, og þá sérstaklega varnarmennirnir, eiga auðvitað mjög stóran þátt í því hversu vel mér hefur gengið. Þegar þeir sem spila fyrir framan mig standa sig vel, þá er allt miklu auðveldara hjá mér."
,,Þegar við vinnum og náum að halda hreinu þá kætast menn eins og ég, Carra og Arbeloa sérstaklega, því það er jú okkar hlutverk að halda markinu hreinu. Á sama hátt og sóknarmenn reyna alltaf að skora er það markmið varnarmanna og markvarða að halda hreinu. Það er mun sætara fyrir okkur að vinna 1-0 en 2-1."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

