Forsíða

Frétt

23.06.2009 12:06 | Heimir Eyvindarson

Fernando Torres fær nógu langt frí

Margir hafa haft áhyggjur af því að hið aukna álag sem Álfukeppninni fylgir muni hafa neikvæð áhrif á Liverpool liðið á næsta tímabili.



Fernando Torres hefur litlar áhyggjur af þessu og fullyrðir að hann og félagar hans í spænska landsliðinu; Albert Riera, Xabi Alonso, Alvaro Arbeloa og Pepe Reina muni mæta fílefldir til leiks á undirbúningstímabilinu, þrátt fyrir að fá heldur styttra sumarfrí en liðsfélagarnir.

Rafa Benítez ætlar að gefa þeim sem taka þátt í Álfukeppninni aðeins lengra frí og þeir munu því ekki mæta til leiks hjá Liverpool fyrr en kemur að keppnisferðinni til Asíu í júlímánuði.

,,Nú einbeitum við okkur bara að því að klára Álfukeppnina með stæl. Við stefnum á sigur og ekkert annað", segir Torres.

,,Þegar því er lokið þá fáum við loksins sumarfrí, það verður afskaplega ljúft. Síðan er það Asíutúrinn með Liverpool, það verður mjög spennandi."

,,Ég lofa því að við verðum í fullu fjöri þegar við komum til baka eftir fríið. Við hlökkum mikið til næsta tímabils, bæði með Liverpool og spænska landsliðinu. Liverpool verður vonandi í toppbaráttunni og svo er náttúrlega HM næsta sumar."

Spánn mætir Bandaríkjunum í undanúrslitum Álfukeppninnar og vonast Torres auðvitað eftir sigri í þeim leik.

,,Ég vonast auðvitað til þess að við komumst í úrslitin og það væri virkilega gaman að mæta Brasilíumönnum í úrslitaleiknum, eins og mér sýnist að flestir vonist til. Það er alltaf sérstakt að spila við Brasilíu, það er einstaklega gott lið og spilar mjög vel um þessar mundir. Þetta yrði sannkallaður draumaúrslitaleikur."

Eins og við vitum öll þá eru aðdáendur Liverpool áberandi um allan heim, og Suður-Afríka er að sjálfsögðu engin undantekning.

,,Það hefur verið alveg ótrúlega margt fólk hérna með Liverpool- borða, fána og treyjur með nafninu mínu á! Ég er alveg orðlaus, ég átti satt að segja ekki von á því svona langt frá Spáni og Englandi. Það er virkilega ánægjulegt að sjá alla þessa gallhörðu stuðningsmenn," segir Fernando Torres að lokum.

Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin