| Ólafur Haukur Tómasson
Liverpool Football Club hefur ekki haft undan við að opinbera nýja starfsmenn félagsins síðustu daga en nokkrir unglingaþjálfarar, varaliðsstjóri og markvarðarþjálfari hafa til að mynda verið ráðnir til félagsins. Mörgum þjálfurum og starfsmönnum hafa verið sagt upp fyrr í mánuðinum, ber þar helst að nefna brottför Rick Parry sem forstjóri félagsins og för fyrrum eiganda félagsins David Moores úr stjórn félagsins.
Nýr forstjóri hefur ekki verið ráðinn en það hefur verið ráðinn nýr framkvæmdarstjóri sem mun sjá um öll helstu stjórnmál félagsins þar til nýr forstjóri verður ráðinn og þá mun hann halda áfram sem framkvæmdarstjóri í stjórn félagsins. Hann mun sjá um að vera hægri hönd eigenda félagsins, fylgist með fjármálum félagsins, starfar með Rafa Benítez í leikmannamálum og starfar náið með fjármálastjóranum Philip Nash og framkvæmdarstjóra auglýsingamála Ian Ayre. Svo það er mikið á döfinni hjá hinum nýja framkvæmdarstjóra.
Framkvæmdarstjórinn ber nafnið Christian Purslow og er ævilangur stuðningsmaður Liverpool. Hann er fjörtíu og fimm ára gamall og hefur hann gengt mörgum stjórnunarstöðum hjá fyrirtækjum á borð við MidOcean Partners, Morgan Grenfell Private Equity og fleiri. Hann talar reiprennandi spænsku, en hann er með háskólagráðu í tungumálum frá Cambridge háskólanum og MBA gráðu frá Harvard viðskiptaháskólanum.
George Gillett hafði þetta um málin að segja: "Mér og Tom fundumst að við þyrftum að fá mjög reyndan og virtann mann í stöðuna til að stjórna félaginu, styðja við liðið og stjórann. Það er mikið verk framundan í sumar í að byggja á þeirri frábæru leiktíð sem við áttum í fyrra og Christian verður mikilvæg viðbót við félagið.
Tom Hicks sagði þetta: "Christian er mikill stuðningsmaður félagsins og hefur verið í mörg ár, hann hefur nú þegar byggt upp góð sambönd við Anfield. Aðferðir hans og viðskiptavit hans munu reynast vel og við erum himinlifandi með að hann hefur tryggt sig við félagið í mörg ár."
Leitin af nýjum forstjóra heldur áfram og verður ráðið í þá stöðu á allra næstu dögum, leitin hefur staðið lengi yfir og er greinilegt að engin mistök eigi að gerast. Meðal þeirra sem hafa verið taldir líklegir til að hreppa stöðuna eru þeir Ian Ayre, framkvæmdarstjóri auglýsingamála Liverpool FC og Brian Barwick, fyrrum forstjóri Knattspyrnusambands Englands.
TIL BAKA
Nýr framkvæmdarstjóri ráðinn
Liverpool Football Club hefur ekki haft undan við að opinbera nýja starfsmenn félagsins síðustu daga en nokkrir unglingaþjálfarar, varaliðsstjóri og markvarðarþjálfari hafa til að mynda verið ráðnir til félagsins. Mörgum þjálfurum og starfsmönnum hafa verið sagt upp fyrr í mánuðinum, ber þar helst að nefna brottför Rick Parry sem forstjóri félagsins og för fyrrum eiganda félagsins David Moores úr stjórn félagsins.Nýr forstjóri hefur ekki verið ráðinn en það hefur verið ráðinn nýr framkvæmdarstjóri sem mun sjá um öll helstu stjórnmál félagsins þar til nýr forstjóri verður ráðinn og þá mun hann halda áfram sem framkvæmdarstjóri í stjórn félagsins. Hann mun sjá um að vera hægri hönd eigenda félagsins, fylgist með fjármálum félagsins, starfar með Rafa Benítez í leikmannamálum og starfar náið með fjármálastjóranum Philip Nash og framkvæmdarstjóra auglýsingamála Ian Ayre. Svo það er mikið á döfinni hjá hinum nýja framkvæmdarstjóra.
Framkvæmdarstjórinn ber nafnið Christian Purslow og er ævilangur stuðningsmaður Liverpool. Hann er fjörtíu og fimm ára gamall og hefur hann gengt mörgum stjórnunarstöðum hjá fyrirtækjum á borð við MidOcean Partners, Morgan Grenfell Private Equity og fleiri. Hann talar reiprennandi spænsku, en hann er með háskólagráðu í tungumálum frá Cambridge háskólanum og MBA gráðu frá Harvard viðskiptaháskólanum.
George Gillett hafði þetta um málin að segja: "Mér og Tom fundumst að við þyrftum að fá mjög reyndan og virtann mann í stöðuna til að stjórna félaginu, styðja við liðið og stjórann. Það er mikið verk framundan í sumar í að byggja á þeirri frábæru leiktíð sem við áttum í fyrra og Christian verður mikilvæg viðbót við félagið.
Tom Hicks sagði þetta: "Christian er mikill stuðningsmaður félagsins og hefur verið í mörg ár, hann hefur nú þegar byggt upp góð sambönd við Anfield. Aðferðir hans og viðskiptavit hans munu reynast vel og við erum himinlifandi með að hann hefur tryggt sig við félagið í mörg ár."
Leitin af nýjum forstjóra heldur áfram og verður ráðið í þá stöðu á allra næstu dögum, leitin hefur staðið lengi yfir og er greinilegt að engin mistök eigi að gerast. Meðal þeirra sem hafa verið taldir líklegir til að hreppa stöðuna eru þeir Ian Ayre, framkvæmdarstjóri auglýsingamála Liverpool FC og Brian Barwick, fyrrum forstjóri Knattspyrnusambands Englands.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

