| SSteinn

Fregnir af aðalfundi og ársgjaldi

Aðalfundur Liverpoolklúbbsins var haldinn á Players í Kópavogi, þriðjudagskvöldið 19. maí sl.  Það helsta sem ákveðið var á þeim fundi var m.a. að hækka árgjaldið í klúbbinn úr 2.500 kr. í 3.000 kr.  Fjölskylduaðild hækkar jafnframt í 1.500 kr. pr auka fjölskyldumeðlim.  Þetta er fyrsta hækkun á árgjaldinu í sex ár og nauðsynleg til þess að halda uppi þeim staðli sem klúbburinn hefur sett sér.

Nýr maður í stjórn var kjörinn Héðinn Gunnarsson og var hann kjörinn varamaður til eins árs.  Annars er stjórnin óbreytt, Aðalheiður Pálmadóttir var kjörinn varamaður til eins árs og þeir Hallgrímur Indriðason, Bragi Brynjarsson og Árni Þór Freysteinsson voru kjörnir í aðalstjórn til tveggja ára.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan