| Sf. Gutt
Nú fyrr í vikunni greindu staðarblöðin í Liverpool frá því að mjög líklegt væri að Glen Johnson komi til Liverpool frá Portsmouth núna í sumar. Félögin hafa þó enn ekkert sent opinberlega frá sér um hugsanleg kaup og sölu á leikmanninum.
En nú mætti telja næsta víst að vistaskipti enska landsliðsmannsins séu komin mjög langt á veg. Glöggir lesendur Liverpoolfc.tv tóku nefnilega eftir því að hægt var að kaupa keppnistreyju með nafninu "Johnson" í vefverslun Liverpool F.C.! Reyndar var "Johnson" ekki kominn með keppnisnúmer svo ekki var hægt að festa sér númer en nafnið var sannarlega í boði.
Hér er hægt að sjá listann sem var að finna á síðu vefverslunarinnar. Fréttin birtist í gær á vefsíðu aðdáendaklúbbs Liverpool í Suður Afríku. Nafnið "Johnson" er reyndar ekki lengur á listanum svo kannski má segja að þetta sé hið dularfyllsta mál. Það er að minnsta kosti skemmtilegt en stuðningsmenn Liverpool verða að bíða enn um sinn áður en það liggur fyrir með hvaða liði Glen Johnson spilar með á næstu leiktíð.
Það væri gaman að vita hvort einhver hefur pantað sér treyju með nafninu "Johnson" á meðan það var hægt! En kannski var þetta bara allt búið til í tölvu. En 1. apríl er reyndar löngu liðinn!
Af Glen Johnson sjálfum er það að frétta að hann mun vera fjarri Englandi í sumarfríi. Telja staðarblöðin í Liverpool að ekkert verði tilkynnt um vistaskipti hans fyrr en hann komi heim úr fríinu.
TIL BAKA
Hægt að kaupa treyju með nafninu "Johnson"!
Nú fyrr í vikunni greindu staðarblöðin í Liverpool frá því að mjög líklegt væri að Glen Johnson komi til Liverpool frá Portsmouth núna í sumar. Félögin hafa þó enn ekkert sent opinberlega frá sér um hugsanleg kaup og sölu á leikmanninum. En nú mætti telja næsta víst að vistaskipti enska landsliðsmannsins séu komin mjög langt á veg. Glöggir lesendur Liverpoolfc.tv tóku nefnilega eftir því að hægt var að kaupa keppnistreyju með nafninu "Johnson" í vefverslun Liverpool F.C.! Reyndar var "Johnson" ekki kominn með keppnisnúmer svo ekki var hægt að festa sér númer en nafnið var sannarlega í boði.
Hér er hægt að sjá listann sem var að finna á síðu vefverslunarinnar. Fréttin birtist í gær á vefsíðu aðdáendaklúbbs Liverpool í Suður Afríku. Nafnið "Johnson" er reyndar ekki lengur á listanum svo kannski má segja að þetta sé hið dularfyllsta mál. Það er að minnsta kosti skemmtilegt en stuðningsmenn Liverpool verða að bíða enn um sinn áður en það liggur fyrir með hvaða liði Glen Johnson spilar með á næstu leiktíð.
Það væri gaman að vita hvort einhver hefur pantað sér treyju með nafninu "Johnson" á meðan það var hægt! En kannski var þetta bara allt búið til í tölvu. En 1. apríl er reyndar löngu liðinn!
Af Glen Johnson sjálfum er það að frétta að hann mun vera fjarri Englandi í sumarfríi. Telja staðarblöðin í Liverpool að ekkert verði tilkynnt um vistaskipti hans fyrr en hann komi heim úr fríinu.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

