| Sf. Gutt

Af Álfukeppninni

Á meðan Íslendingar héldu þjóðhátíðardaginn hátíðlegan hélt Álfukeppnin áfram suður í Suður Afríku. Evrópumeistararnir héldu sínu striki og í dag voru það Asíumeistararnir sem máttu þola tap. Aðeins eitt mark var skorað og það var David Villa sem skoraði það með skalla og tryggði Spánverjum 1:0 sigur á Írönum. Sigurinn kom Spánverjum í undanúrslit. Xabi Alonso og Fernando Torres léku allan leikinn. Jose Reina, Alvaro Arbeloa og Albert Riera komu ekki við sögu. Þetta var fjórtándi sigur Spánverja í röð.

Í hinum leiknum lögðu gestgjafar Suður Afríku Nýja Sjáland að velli 2:0. Bernard Parker skoraði bæði mörkin.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan