| Grétar Magnússon
Búið er að tilkynna niðurröðun leikja fyrir komandi tímabil í ensku Úrvalsdeildinni. Sem fyrr byrjar Liverpool á útivelli og mun það vera í sjötta sinn í röð sem það gerist!
Tímabilið hefst þann 15. ágúst og hefur liðið tækifæri á því að hefna ófaranna eftir síðustu heimsókn á White Hart Lane en þar tapaði liðið sínum fyrsta leik á síðasta tímabili 2-1. Þar skoraði Dirk Kuyt eina mark liðsins í leiknum.
Stoke City eru svo fyrsta liðið sem heimsækir Anfield á nýju tímabili fjórum dögum síðar og þar hefur liðið aftur harma að hefna en liðin gerðu 0-0 jafntefli á Anfield í fyrra. 22. ágúst koma svo Aston Villa menn í heimsókn. Þann 29. ágúst heimsækir liðið svo Bolton Wanderers á Reebook völlinn.
Stærstu leikirnir eru að sjálfsögðu gegn hinum toppliðunum fjórum og nágrannaslagur við Everton. Fyrsti stórleikurinn verður á Stamford Bridge 3. október og þann 24. koma Manchester United í heimsókn. Fyrri nágrannaslagur tímabilsins er svo þann 28. nóvember á Goodison Park og Arsenal menn koma svo á Anfield þann 12. desember.
Um jólin er svo leikið við Úlfana á annan í jólum, þann 28. desember verða svo Villa menn heimsóttir á Villa Park. Fyrsti leikur í deildinni á nýju ári er heimsókn Tottenham þann 9. janúar.
Þann 6. febrúar er svo komið að síðari nágrannaslagnum og þrem dögum síðar er leikið við Arsenal á Emirates. Þann 20. mars er haldið á Old Trafford þar sem Liverpool menn eiga góðar minningar frá síðasta tímabili. 1. maí koma svo Chelsea menn í heimsókn en það er næstsíðasti leikur tímabilsins, síðasti leikurinn er gegn Hull á útivelli þann 9. maí.
Hér að neðan er leikjadagskráin í heild sinni
Ágúst
15 - Tottenham Ú
19 - Stoke H
22 - Aston Villa H
29 - Bolton Ú
September
12 - Burnley H
19 - West Ham Ú
26 - Hull H
Október
3 - Chelsea Ú
17 - Sunderland Ú
24 - Man Utd H
31 - Fulham Ú
Nóvember
7 - Birmingham H
21 - Man City H
28 - Everton Ú
Desember
5 - Blackburn Ú
12 - Arsenal H
16 - Wigan H
19 - Portsmouth Ú
26 - Wolverhampton H
28 - Aston Villa Ú
Janúar
9 - Tottenham H
16 - Stoke Ú
26 - Wolverhampton Ú
30 - Bolton H
Febrúar
6 - Everton H
9 - Arsenal Ú
20 - Man City Ú
27 - Blackburn H
Mars
6 - Wigan Ú
13 - Portsmouth H
20 - Man Utd Ú
27 - Sunderland H
Apríl
3 - Birmingham Ú
10 - Fulham H
17 - West Ham H
24 - Burnley Ú
Maí
1 - Chelsea H
9 - Hull Ú
Einhverjar af þessum dagsetningum koma til með að breytast því einhverjir leikir verða færðir til vegna beinnar útsendingar í sjónvarpi.
TIL BAKA
Liverpool byrjar á White Hart Lane
Búið er að tilkynna niðurröðun leikja fyrir komandi tímabil í ensku Úrvalsdeildinni. Sem fyrr byrjar Liverpool á útivelli og mun það vera í sjötta sinn í röð sem það gerist!Tímabilið hefst þann 15. ágúst og hefur liðið tækifæri á því að hefna ófaranna eftir síðustu heimsókn á White Hart Lane en þar tapaði liðið sínum fyrsta leik á síðasta tímabili 2-1. Þar skoraði Dirk Kuyt eina mark liðsins í leiknum.
Stoke City eru svo fyrsta liðið sem heimsækir Anfield á nýju tímabili fjórum dögum síðar og þar hefur liðið aftur harma að hefna en liðin gerðu 0-0 jafntefli á Anfield í fyrra. 22. ágúst koma svo Aston Villa menn í heimsókn. Þann 29. ágúst heimsækir liðið svo Bolton Wanderers á Reebook völlinn.
Stærstu leikirnir eru að sjálfsögðu gegn hinum toppliðunum fjórum og nágrannaslagur við Everton. Fyrsti stórleikurinn verður á Stamford Bridge 3. október og þann 24. koma Manchester United í heimsókn. Fyrri nágrannaslagur tímabilsins er svo þann 28. nóvember á Goodison Park og Arsenal menn koma svo á Anfield þann 12. desember.
Um jólin er svo leikið við Úlfana á annan í jólum, þann 28. desember verða svo Villa menn heimsóttir á Villa Park. Fyrsti leikur í deildinni á nýju ári er heimsókn Tottenham þann 9. janúar.
Þann 6. febrúar er svo komið að síðari nágrannaslagnum og þrem dögum síðar er leikið við Arsenal á Emirates. Þann 20. mars er haldið á Old Trafford þar sem Liverpool menn eiga góðar minningar frá síðasta tímabili. 1. maí koma svo Chelsea menn í heimsókn en það er næstsíðasti leikur tímabilsins, síðasti leikurinn er gegn Hull á útivelli þann 9. maí.
Hér að neðan er leikjadagskráin í heild sinni
Ágúst
15 - Tottenham Ú
19 - Stoke H
22 - Aston Villa H
29 - Bolton Ú
September
12 - Burnley H
19 - West Ham Ú
26 - Hull H
Október
3 - Chelsea Ú
17 - Sunderland Ú
24 - Man Utd H
31 - Fulham Ú
Nóvember
7 - Birmingham H
21 - Man City H
28 - Everton Ú
Desember
5 - Blackburn Ú
12 - Arsenal H
16 - Wigan H
19 - Portsmouth Ú
26 - Wolverhampton H
28 - Aston Villa Ú
Janúar
9 - Tottenham H
16 - Stoke Ú
26 - Wolverhampton Ú
30 - Bolton H
Febrúar
6 - Everton H
9 - Arsenal Ú
20 - Man City Ú
27 - Blackburn H
Mars
6 - Wigan Ú
13 - Portsmouth H
20 - Man Utd Ú
27 - Sunderland H
Apríl
3 - Birmingham Ú
10 - Fulham H
17 - West Ham H
24 - Burnley Ú
Maí
1 - Chelsea H
9 - Hull Ú
Einhverjar af þessum dagsetningum koma til með að breytast því einhverjir leikir verða færðir til vegna beinnar útsendingar í sjónvarpi.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

