| Grétar Magnússon
Nokkrar breytingar virðast vera í farvatninu í þjálfaramálum félagsins en Rafa Benítez vill stokka upp í þjálfaraliði Akademíunnar.
Benítez mun víst ekki hafa verið sáttur með það hvernig Akademíunni er stjórnað og þegar hann undirritaði nýjan samning við félagið fékk hann meiri völd yfir Akademíunni og öllum málum þar.
Búið er að tilkynna brottför Gary Ablett sem stjóra varaliðsins en hann hefur gengt því starfi undanfarin þrjú ár með ágætis árangri. Hugh McAuley stjóri U-18 ára liðsins mun yfirgefa félagið þrátt fyrir að hafa stýrt liðinu í úrslit FA Unglingabikarkeppninnar á þessu tímabili en liðið tapaði þar fyrir Arsenal.
Þá munu þeir Dave Lever og Dave Shannonn einnig yfirgefa félagið en þeir eru þjálfarar í Akademíunni.
Frank McParland mun snúa aftur til félagsins og eins og greint var frá hér fyrir skömmu kom Jose Segura til félagsins til að taka við stjórnartaumunum í Akademíunni af Piet Hamberg.
Þá lítur allt út fyrir það að Kenny Dalglish muni koma til félagsins og gegna þar stöðu ráðgjafa eða nokkurskonar sendiherra. Þá hefur Gary McAllister einnig verið orðaður við þjálfarastöðu.
TIL BAKA
Af þjálfaramálum
Nokkrar breytingar virðast vera í farvatninu í þjálfaramálum félagsins en Rafa Benítez vill stokka upp í þjálfaraliði Akademíunnar.Benítez mun víst ekki hafa verið sáttur með það hvernig Akademíunni er stjórnað og þegar hann undirritaði nýjan samning við félagið fékk hann meiri völd yfir Akademíunni og öllum málum þar.
Búið er að tilkynna brottför Gary Ablett sem stjóra varaliðsins en hann hefur gengt því starfi undanfarin þrjú ár með ágætis árangri. Hugh McAuley stjóri U-18 ára liðsins mun yfirgefa félagið þrátt fyrir að hafa stýrt liðinu í úrslit FA Unglingabikarkeppninnar á þessu tímabili en liðið tapaði þar fyrir Arsenal.
Þá munu þeir Dave Lever og Dave Shannonn einnig yfirgefa félagið en þeir eru þjálfarar í Akademíunni.
Frank McParland mun snúa aftur til félagsins og eins og greint var frá hér fyrir skömmu kom Jose Segura til félagsins til að taka við stjórnartaumunum í Akademíunni af Piet Hamberg.
Þá lítur allt út fyrir það að Kenny Dalglish muni koma til félagsins og gegna þar stöðu ráðgjafa eða nokkurskonar sendiherra. Þá hefur Gary McAllister einnig verið orðaður við þjálfarastöðu.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

