| Sf. Gutt

Goðsagnir Liverpool fóru á kostum í kvöld!

Goðsagnir Liverpool fóru á kostum í kvöld og unnu úrvalslið 3:1 á Anfield. Leikurinn var góðgerðarleikur í minningu þeirra 96 sem létust á Hillsborough fyrir 20 árum. Allur ágóði af leiknum mun renna í sjóð sem Marina Dalglish stofnaði fyrir nokkrum árum. Fé úr sjóðnum hefur, síðustu árin, farið til krabbameinsdeildar við sjúkrahús í Liverpool.

Steven Gerrard, Knattspyrnumaður ársins 2009, var heiðursgestur og heilsaði upp á leikmenn liðanna fyrir leikinn. Kenny Dalglish, Phil Thompson og Jamie Carragher stjórnuðu liði Liverpool. Nokkur færi sköpuðust en fyrsta markið kom á 28. mínútu. Peter Beardsley sendi fyrir markið á John Aldridge sem skallaði að marki. Bobby Mimms, fyrrum markmaður Everton, varði en Ian Rush sýndi að hann hefur engu gleymt. Hann tók frákastið og skoraði af stuttu færi eins og hann gerði svo oft. Þeir Alan Stubbs og Alan Shearer voru nærri því að jafna fyrir leikhlé en mark Liverpool slapp.

Goðsagnir Liverpool bættu við forystu sína á 53. mínútu. Don Hutchison sendi á Gary McAllister sem gaf hárnákvæmt fyrir markið yfir á fjærstöng þar sem John Aldridge var mættur til að skora af stuttu færi. Rétt á eftir fékk Mike Newell, sem ólst upp hjá Liverpool en lék með Everton og fleiri liðum, upplagt færi til að laga stöðuna en hann skaut framhjá. Úrvalsliðinu tókst loks að skora þegar leið að leikslokum en þá skoraði Teddy Sheringham með því að lyfta boltanum yfir Bob Bolder markmann Liverpool. Goðsagnirnar skoruðu aftur á lokamínútunum og framkallaði það mark mesta fögnuð kvöldsins. Kenny Dalglish fékk þá boltann á silfurfati frá Alan Stubbs og Kónurinn gerði ekki nein mistök þegar hann skoraði fyrir framan The Kop! Fullkominn endir á góðri kvöldstund.

Liverpool: Paul Harrison, Gary Ablett, Steve Staunton, Gary Gillespie, Ronnie Whelan, Alan Hansen, Kenny Dalglish, John Aldridge, Ian Rush, Ray Houghton og Steve McMahon. Varamenn: Jan Molby, Bob Bolder, Mark Lawrenson, Don Hutchison, Nicky Byrne, Peter Beardsley, Jamie Redknapp, Steve McManaman, Gary McAllister, Gethin Jones, Michael Thomas, Dean Lennox Kelly og John Bishop.

Úrvalslið: Bobby Mimms, Viv Anderson, Steve Hodge, Des Walker, Dave Watson, Paul Bracewell, Trevor Steven, Graham Stuart, Nigel Clough, Teddy Sheringham og Bradley Walsh. Varamenn: Alan Irvine, Mike Newell, Stuart Barlow, Alan Stubbs, Craig David, Tim Lovejoy, Alan Shearer, Spoony, Craig Lennox Kelly og Jonathan Wilkes.

Áhorfendur á Anfield Road: 20.332.



TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan