| Ólafur Haukur Tómasson

Hverjir gætu komið? Hluti I

Það er ótrúlegt að segja það að þó að Liverpool hafi leikið sitt besta tímabil í tæp tuttugu ár þá nægði það ekki til að liðið landaði einhverjum titli en liðið var þó ekki langt frá því að landa þeim titli sem félagið þráir hvað mest, en auðvitað er verið að tala um Englandsmeistaratitilinn. Liðið hafnaði í öðru sæti deildarinnar með tvo tapleiki á bakinu, liðið skoraði flest mörk í deildinni, liðið fékk fjórtán af átján mögulegum stigum gegn sterkustu liðum deildarinnar svo á heildina lítið hefði þetta yfirleitt dugað til að hampa titlinum en of mörg jafntefli kostuðu Liverpool titlinum.

Rafael Benítez og útsendarar hans hafa verið að fylgjast grannt með leikmönnum til að styrkja leikmannahópinn fyrir næsta tímabil en það gæti verið það tímabil sem liðið hampi titlinum, nái forráðarmenn Liverpool að spila rétt úr spilunum með því að gera rétt og góð kaup í sumar. Rafael Benítez hefur sagt að nýjir leikmenn munu koma en að hann muni reyna að halda flestum ef ekki öllum helstu lykilmönnum liðsins enda mikilvægt að halda í þá sem hafa skilað góðum árangri fyrir liðið á tímabilinu. Einhverjir leikmenn gætu yfirgefið félagið og eru margir hverjir taldir líklegri en aðrir, þær sögur sem heyrast hvað hæst er að forsetaframbjóðendur Real Madrid munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að fjárfesta í Xabi Alonso, einum allra mikilvægasta leikmanni félagsins.

Hvað stöður þarf liðið að styrkja og hvaða leikmenn gætu hentað liðinu best? Sumir vilja nýja bakverði, aðrir vilja nýja kantmenn og jafnvel enn aðrir vilja nýja framherja. Margir leikmenn hafa verið orðaðir við félagið síðan í síðasta félagsskiptaglugga og hér mun koma smá samantekt á þeim leikmönnum sem hafa verið orðaðir við félagið.


Daniel Pranjic:
Fyrsti leikmaðurinn sem fjallað verður um er hinn 27 ára gamli Króati, Daniel Pranjic. Hann er landsliðsmaður Króata og leikur með hollenska liðinu Heereveen.

Hann er miðjumaður sem er mjög iðinn við að skora og er hann til að mynda kominn með sextán mörk í 28 leikjum í hollensku deildinni en það verður að teljast ágætt fyrir miðjumann. Hins vegar leikur enginn vafi á að hollenska deildin er ekki nálægt Ensku Úrvalsdeildinni hvað varðar gæði liða og hafa margir markahrókar komið frá hollensku deildinni yfir í þá ensku og ekki staðið undir þeim væntingum sem gerðar voru til þeirra, en það þarf þó ekki endilega að vera raunin hjá honum.

Hann er er örvfættur og gæti því mögulega verið hugsaður á vinstri kantinn. Hann er hraður leikmaður, með ágætis skottækni og hann er einnig mjög sterkur í föstum leikatriðum, þá sérstaklega í aukaspyrnum.

Hann hefur verið á mála hjá Heereveen í fjögur ár en þar áður var hann hjá Dynamo Zagreb í heimalandi sínu. Samkvæmt umboðsmanni hans þá eru lið eins og Real Betis, Sevilla, West Ham og Newcastle, ásamt þá Liverpool sem á að hafa spurst fyrir um hann. Kaupverðið á honum ætti ekki að vera mikið meira en tíu milljónir punda, ef það næði því þá yfir höfuð.




Glen Johnson:
Þessi öflugi hægri bakvörður hefur verið reglulega orðaður við Liverpool á tímabilinu og eftir fremur slappt gengi Portsmouth í Úrvalsdeildinni þá ýtir það undir þá orðróma að hann gæti leitað á önnur mið og eru lið eins og Liverpool, Tottenham og Aston Villa sögð líkleg til að krækja í kauða.

Hann hefur leikið fyrir Úrvalsdeildarliðin Chelsea, Portsmouth og West Ham svo hann er gífurlega reyndur Úrvalsdeildinni, einnig sem að hann á að baki sér hátt í fimmtán leiki fyrir enska landsliðið. Helsti styrkur hans er hve öflugur hann er á vallarhelmingi andstæðinganna og hefur varnarleikur hans farið miklum framförum á tímabilinu og gæti hann hugsanlega orðið magnaður komist hann í hendur Rafael Benítez, sem virðist einstaklega laginn við að ná því besta út úr flestum leikmönnum.

Miklir orðrómar voru um það í janúar mánuði að hann væri búinn að semja við Liverpool og væri bara tímaspurs mál hvenær hann myndi klæðast rauðu treyjunni en það varð þó ekki raunin heldur framlengdi hann samning sinn við Portsmouth.

Það er þó líklegt að Liverpool, eða það lið sem myndi ætla að festa klær sínar í hann, myndi þurfa að eyða hátt í fimmtán milljónir punda fyrir hann enda hefur það lengi tíðkast að enskir leikmenn séu háir í verði.




Mounir El Hamdaoui:
Hann er 24 ára gamall Marakóskur framherji sem er á mála hjá Hollenska liðinu AZ Alkmaar en hann var áður hjá enska liðinu Tottenham þar sem hann lék engan leik fyrir félagið.

Mounir hefur átt mjög gott tímabil í Hollandi og hefur hann skorað 22 mörk í þrjátíu leikjum á tímabilinu, en AZ urðu Hollenskir meistarar. Hann er mjög áhugaverður leikmaður því hann býr yfir gífurlega flottri boltatækni og með mikið markanef.

Bæði Liverpool og Arsenal eru sögð hafa fylgst með Mounir á tímabilinu og hafa bæði áhuga á að fá hann í sínar raðir fyrir næsta tímabil. Sú staðreynd að hann lék ekki leik fyrir Tottenham gæti eflaust fengið fólk til að líta á það að hann ætti þá ekki eftir að festa sig í sessi hjá Liverpool en það eru þrjú ár síðan hann var í herbúðum þeirra og hefur hann án nokkurs vafa styrkt sig og þroskast síðan þá.

Rafael Benítez leitar að öllum líkindum að framherja til að geta deilt byrðina um að skora mörk með Fernando Torres og einhverjum sem gæti þá líklegast verið tilbúinn að í að verma varamannabekkinn hjá liðinu og koma klár þegar hans tækifæri kemur. Mounir gæti fallið undir þessa lýsingu svo það er aldrei að vita nema hann gæti leikið í Liverpool á næsta tímabili en kaupverðið á honum gæti kanski verið hátt í tíu milljónir punda.




Yuri Zhirkov:
Hann er 25 ára gamall og leikur með CSKA Moskvu í Rússlandi einnig sem að hann er fastamaður í landsliði Rússa. Hann er mjög sóknarsinnaður vinstri bakvörður sem einnig getur spilað sem vinstri kantmaður.

Margir segja að hann sé svar Rússa við Ronaldinho enda býr hann yfir gífurlegri boltatækni, útsjónarsemi og hraða. Hann er mikill vinnuhestur, sterkur í föstum leikatriðum og góður tæklari, þetta hljómar allt eitthvað sem að Rafael Benítez virðist leita að í leikmönnum.

Hann lék með Rússneska landsliðinu á Evrópumótinu í fyrra sumar og var hann til að mynda valinn í lið ársins einnig var hann í hópi þeirra þrjátíu sem komu til greina til að vera kjörinn "besti leikmaður heims". Hann hefur leikið 135 leiki fyrir CSKA Moskvu og þrjátíu leiki með landsliðinu.

Sögur herma að Liverpool séu nálægt því að stela undirskrift hans undan nefi Chelsea sem hafa verið orðaðir við hann og voru að mörgum taldir líklegir til að fá hann í sínar raðir, þá sérstaklega vegna þess að Guus Hiddink er við stjórnvölin hjá Chelsea en þar sem hann mun ekki vera lengur en þetta tímabil þá virðist það vopn Chelsea ekki eins beinskeytt og það þótti.

Þessi leikmaður kæmi án nokkurs vafa til með að styrkja leikmannahóp Liverpool svo um munar en hann gæti kostað dágóða summu og er talað um fimmtán milljóna punda verðmiða á honum en miðað við gæði hans verður það að teljast ekkert himinhá upphæð.




Jordi Gomez:
Þetta er 24 ára gamall miðjumaður sem er samningsbundinn spænska liðinu Espanyol en hefur eytt tímabilinu sem lánsmaður hjá enska fyrstu deildarliðinu Swansea þar sem hann hefur heldur betur slegið í gegn og var valinn í lið ársins í fyrstu deildinni enda skoraði hann tólf mörk í 36 deildarleikjum á tímabilinu.

Leikmaðurinn var alinn upp í akademíu Barcelona eins og margir aðrir öflugir spænski leikmenn en hann spilar nú fyrir erkifjendurna í Espanyol. Skoska liðið Celtic hefur gífurlegan áhuga á að fá kauða til sín og hefur frammistaða hans á tímabilinu vakið athygli Rafael Benítez sem að gæti reynt að tæla hann til sín þar sem kaupverðið á honum er talið vera aðeins tvær milljónir punda.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan