L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
01.05.2009 19:05
|
Ólafur Haukur Tómasson
Rafa vill toppa síðustu viðureign
Liverpool heldur áfram að freista þess að hampa sínum fyrsta Englandsmeistaratitli í nítján ár, liðið þarf til þess að vinna alla sína leiki og vonast til að Manchester United muni misstíga sig og tapa stigum. Liverpool mun mæta lærisveinum Alan Shearer í Newcastle á Anfield.
Fyrri viðureign liðanna á St.James Park lauk með 5-1 stórsigri Liverpool en sigur Liverpool hefði getað orðið töluvert stærri ef hefði ekki verið fyrir stórleik Shay Given í marki Newcastle. Rafael Benítez vonast eftir því að liðið muni endurtaka slíka frammistöðu á sunnudaginn en hann segir að frammistaða liðsins í fyrri viðureigninni hafi verið nær fullkomin.
"Við vorum mjög góðir. Við vorum við stjórnina, við áttum fullt af færum og markvörður þeirra var maður leiksins. Þetta var nær fullkomin frammistaða hjá okkur.
Það verður annað upp á teningnum í þetta skiptið því þeir eru með annan stjóra og eru í allt annari stöðu. Þeir þurfa klárlega að sigra leikinn svo ég tel að þeir muni ekki koma og vonast eftir því að halda út jafntefli, þeir hafa marga gæða sóknarmenn í sínum röðum.
Við verðum bara að gera okkar og við höfum trú á að við höldum áfram að vinna leiki. Ef Manchester United gera mistök þá verðum við að vera klárir. Við verðum að taka öll stigin úr hverjum leik og sjá svo hvað setur. Við munum ekki gefast upp fyrr en í lokin."
Benítez er mjög ánægður með spilamennsku liðsins á þessum mikilvæga kafla á tímabilinu, með þrjátíu mörk í síðustu níu deildarleikjum sýnir það og sannar að Rauði herinn gerir allt sem í sínu valdi stendur til að halda í þá von að geta endað uppi sem Englandsmeistari.
"Stundum gagnrýnir fólk okkur og segir okkur vera varnarsinnað lið en við erum klárlega lið sem sækjum alltaf. Þegar við erum yfir með einu marki gegn engu þá leitum við alltaf eftir öðrumarki. Fjöldi markanna sem við höfum skorað á tímabilinu sýnir að við erum sóknarsinnað lið sem spilar einnig mjög góðan varnarleik."
Liverpool getur bætt markamet sitt í Úrvalsdeildinni ef liðinu tekst að skora yfir 71 mark á tímabilinu en liðið hefur ekki skorað fleiri en 71 síðan árið 1997.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir