| Sf. Gutt

Meistararnir unnu stórsigur í lokaleiknum!

Englandsmeistarar varaliða náðu sér vel í gang í síðasta leik og unnu stórsigur. Liverpool lagði Newcastle United að velli 5:1 og hafnar því ekki í botnsæti deildarinnar. Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn.

Gary Ablett, þjálfari varaliðsins, ætlaði greinilega ekki að enda leiktíðina í botnsæti deildarinnar sem liðið hans vann með yfirburðum á síðustu leiktíð. Hann stillti upp venju fremur reyndu liði á Halliwell Jones leikvanginum og það skilaði sér. Það var líka komið gott sjálfstraust í liðið eftir að það vann Bikarkeppni Liverpool borgar í fyrrakvöld. Sjö leikmenn byrjunarliðsins léku líka í úrslitaleiknum.  

Liverpool byrjaði leikinn af krafti og tók strax öll völd á vellinum. Á 11. mínútu náði David Ngog föstu skoti að marki sem Ole Soderberg, markmaður Newcastle, varði í horn. Gerardo Bruna tók hornspyrnuna og hitti beint á höfuðið á miðvörðinn Mikel San Jose sem skallaði í mark við fjærstöngina. Eftir stundarfjórðung juku meistararnir forystuna. David Ngog tók þá við langri sendingu fram völlinn, lék á varnarmann og þrumaði boltanum í fjærhornið. Frábært mark hjá franska stráknum sem er búinn að skora þrjú mörk fyrir aðalliðið. Á 20. mínútu sluppu Skjórarnir með skrekkinn þegar Gerardo þrumaði í þverslá úr aukaspyrnu. Átta mínútum seinna tók Gerardo aftur aukaspyrnu. Aftur var Frakki á ferðinni og í þetta sinn var það Damien Plessis. Hann skoraði af stuttu færi og Liverpool var nú komið 3:0 yfir og þannig stóð í hálfleik. 

Liverpool slakaði á klónni eftir leikhlé en höfðu samt öll tök á leiknum. Liverpool komst í 4:0 seint í leiknum þegar varamaðurinn Daniel Pacheco skoraði með fallegu skoti beint úr aukaspyrnu. Skjórarnir náðu að minnka muninn þegar Haris Vuckic skoraði af stuttu færi. Liverpool svaraði á 88. mínútu þegar Daniel skoraði annað mark sitt eftir að hafa sloppið í gegnum vörn Newcastle og skorað af öryggi. Vel gert hjá spænska stráknum og stórsigur Liverpool 5:1 var kominn í höfn. Vonandi tekur aðallið varaliðið sér til fyrirmyndar á sunnudaginn þegar sömu lið mætast í Liverpool!

Liverpool: Dean Bouzanis, Philipp Degen (Emmanuel Gomis Mendy 70. mín.), Stephen Darby, Mikel San Jose Dominguez, Daniel Ayala, Guðlaugur Victor Pálsson, Damien Plessis, Andras Simon, Gerardo Bruna, Nabil El Zhar (Daniel Pacheco 65. mín.) og David Ngog (Nikola Saric 80. mín.). Ónotaðir varamenn: Martin Hansen og Vincent Weijl.
 
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: David Ngog. Hann ógnaði látlaust og afgreiddi markið sitt með tilþrifum.
 
Varalið Liverpool hefur nú lokið leiktíðinni. Liðið hlaut 22 stig í 20 leikjum. Ellefu lið eru í deildinni en það er ekki enn ljóst í hvað sæti Liverpool endar. Liðið er nú í sjöunda sæti og mun ekki enda neðar en í tíunda. Vissulega mikil vonbrigði en tveir sigrar í röð björguðu liðinu frá þeirri niðurlæginu að verma neðsta sæti deildarinnar.

Hér er staðan í deildinni eins og hún var fyrir helgina. Sunderland hefur tryggt sér sigur í deildinni og tekur við titlinum af Liverpool. 

Helsta heimild: Liverpoolfc.tv.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan