| Sf. Gutt

Gary Ablett gleðst yfir titilsigrinum

Liverpool vann Borgarkeppni Liverpool í gærkvöldi eftir 1:0 sigur á utandeildarliðinu Waterloo Docks. Gary Ablett, sem stýrði sigurliðinu, var auðvitað ánægður með sigurinn.
 
"Það er gaman að enda leiktíðina með því að vinna titil en við þurftum að hafa mikið fyrir sigrinum. Við héldum alltaf áfram að berjast og reyna að spila knattspyrnu. Við lékum ekki eins vel og við getum en náðum sigri með mjög fallegu marki. Krisztian afgreiddi boltann vel í markið eftir mjög gott samspil."

Liverpool fékk harða mótspyrnu í úrslitaleiknum frá Waterloo Dock sem var að spila í fyrsta sinn til úrslita í þessari keppni. Gary hældi mótherjunum eftir leikinn.

"Það mætti segja að þeir hafi fengið betri færi í síðari hálfleik en heppnin var með okkar að því leyti að flestar marktilraunir þeirra fóru beint á Dean Bouzanis. Þeir geta verið stoltir því við þurftum að hafa mikið fyrir sigrinum sem var mjög sætur fyrir okkur."

Jim Davies, þjálfari Waterloo Dock var mjög stoltur af liðinu sínu sem hann hefur stjórnað frá stofnun þess árið 1963! "Ég er virkilega stoltur af liðinu mínu. Mér fannst við spila mjög vel og við fengum okkar færi en tókst ekki að nýta þau. Það var stór stund fyrir okkur að koma hingað og spila við Liverpool. Félagið okkar er 46 ára og þetta var fyrsti úrslitaleikur okkar í þessari keppni."
 
Liverpool vann þarna Liverpool Senior Cup í 39. sinn. Síðast vann Liverpool keppnina árið 2004.



TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan