| Sf. Gutt

Liverpool borgarmeistari 2009!

Liverpool vann í kvöld Borgarkeppni Liverpool borgar sem heitir Liverpool Senior Cup á frummálinu. Liðið lagði Waterloo Dock 1:0 að velli í úrslitaleiknum. Ungverjinn Krisztian Nemeth skoraði sigurmarkið. Guðlaugur Victor Pálsson var í sigurliðinu í 39. sigri Liverpool í þessari fornfrægu keppni.

Strákarnir hans Gary Ablett byrjuðu úrslitaleikinn vel og Krisztian Nemeth fékk gott færi eftir fimm mínútur en honum tókst ekki að koma boltanum í markið. Waterloo Dock ætlaði greinilega ekki að gefa neitt eftir enda með harðsnúið lið sem hefur verið sigursælt á leiktíðinni. Leighton McGivern var nærri búinn að skora fyrir Waterloo fjórum mínútum seinna en Mikel San Jose var vel að verði og komst fyrir skot hans á síðustu stundu. Aftur fékk Krisztian færi en Ryan Brookfield varði langskot Ungverjans. 

Dean Bouzanis varði svo vel frá Leighton sem var mjög ógnandi. Waterloo fékk síðan mjög gott færi þegar Anthony Battle fékk frían skalla en hann skallaði framhjá úr dauðafæri. Undir lok hálfleiksins fékk Liverpool aukaspyrnu í góðri stöðu. Daniel Pacheco tók spyrnuna en skot hans fór rétt framhjá. Ekkert hafði verið skorað þegar dómarinn flautaði til hálfleiks.

Liverpool lék betur eftir leikhlé en í fyrri hálfleik. Á 50. mínútu náði Gerardo Bruna skalla sem varnarmaður kom framhjá markinu. Argentínski strákurinn lagði svo upp gott færi fyrir Krisztian. Ungverjinn slapp í gegn og lék á markmanninn. Boltinn stefndi í markið en Garry Riley náði að bjarga á síðustu stundu. Waterloo náði svo tvívegis að ógna marki Liverpool en Godwin Antwi bjargaði í bæði skiptin.
 
Liverpool náði að herða sóknina þegar dró að leikslokum. Krisztian náði enn skoti sem markmaður Waterloo varði. Það var farið að líta út fyrir að það myndi ekki takst hjá Ungverjanum að skora. En hann hafði loks lánið með sér á 76. mínútu. Vincent Weijl fékk boltann úti á kanti eftir samleik Mikel San Jose og Gerardo Bruna. Vincent sendi góða sendingu fyrir markið og Krisztian Nemeth náði að stýra boltanum í markið við markteiginn. Markið var langþráð fyrir ungverska strákinn sem hefur átt erfitt uppdráttar á þessari leiktíð. Liverpool náði að halda fengnum hlut og fagna sigri í leikslok!

Sigurinn var enn sætari vegna þess að Liverpool tapaði úrslitaleiknum í þessari keppni í fyrra. Stephen Darby tók við bikarnum eftir leikinn og Guðlaugur Victor Pálsson, sem lék allan leikinn, fagnaði sínum fyrsta titli með Liverpool! Sigurinn var gleðilegur fyrir Gary Ablett og strákana hans eftir erfiða leiktíð. Góður sigur og það er alltaf gott að koma með bikar heim á Anfield Road!

Liverpool: Dean Bouzanis, Emmanuel Gomis Mendy, Stephen Darby, Mikel San Jose Dominguez, Godwin Antwi, Damien Plessis, Daniel Pacheco (Andras Simon 70. mín.), Guðlaugur Victor Pálsson, Krisztian Nemeth, Gerardo Bruna og Vincent Weijl (Steven Irwin 89. mín.). Ónotaðir varamenn: Martin Hansen, Daniel Ayala og Vitor Flora.

Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Krisztian Nemeth. Hann lagði hart að sér í sókninni og endaði markaþurrð sína með sannkölluðu markaskorara marki.

Helsta heimild: Liverpoolfc.tv.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan