| Sf. Gutt
Meistaravaralið Liverpool náði loksins að vinna sigur í kvöld þegar það lagði Hull City að velli 2:1 á útivelli. Liðið lyfti sér þar með af botni deildarinnar. Um leið gaf varaliðið tóninn fyrir aðalliðið sem mætir Hull á útivelli á laugardaginn. Guðlaugur Victor Pálsson var varamaður að þessu sinni en kom inn á.
Leikurinn byrjaði fjörlega og bæði lið fengu þokkaleg færi. Heimamenn vildi fá víti snemma leiks en fengu ekki. Þeim varð þó að ósk sinni á 26. mínútu þegar Robbie Threlfall, sem er nýkominn úr láni hjá Hereford United, braut á Jamie Devitt. Sá tók vítaspyrnuna sjálfur og skoraði af öryggi með því að senda Martin Hansen í öfugt horn. Rétt á eftir fékk Mark Cullen gott færi en skalli hans úr teignum fór beint á Martin. Þetta kom sér vel fyrir Liverpool því á 43. mínútu náði liðið að jafna metin. Damien Plessis náði þá boltanum rétt við miðjuna og lék fram völlinn áður en hann skoraði með góðu langskoti sem markmaður Hull réði ekki við. Staðan var því jöfn í hálfleik.
Liverpool hóf síðari hálfleikinn af krafti og Gerardo Bruna átti gott skot sem fór rétt yfir. Argentínumanninum, sem er hér á meðfylgjandi mynd, farnaðist betur á 57. mínútu. Hull átti þá hornspyrnu en Liverpool sneri vörn í sókn. Fyrirliðinn Jay Spearing tók á rás fram völlinn og sendi svo góða sendingu á Gerardo sem komst á auðan sjó og skoraði. Liverpool náði nú betri tökum á leiknum og Gerardo átti skot í hliðarnetið eftir góðan undirbúning Robbie Threlfall. Þegar um tuttugu mínútur voru eftir kom Philipp Degen til leiks á nýjan leik eftir síðustu meiðsli sín. Liverpool hafði notað alla varamenn sína undir lokin þegar Jay varð að fara af velli vegna meiðsla og lék því einum færri síðustu mínúturnar. Tígrarnir náðu þó ekki að ógna Liverpool sem náði að halda fengnum hlut og tryggja sér sinn fyrsta deildarsigur frá því í janúar!
Sigurinn lyfti Liverpool úr neðsta sæti varaliðsdeildarinnar upp fyrir Hull City. Bæði lið hafa 18 stig en Liverpool hefur betra markahlutfall. Liverpool á einn leik eftir í deildinni.
Liverpool: Martin Hansen, Stephen Darby, Robbie Threlfall, Mikel San Jose, Godwin Antwi, Damien Plessis, Ryan Crowther, Jay Spearing, Andras Simon (Vitor Flora), Gerardo Bruna (Guðlaugur Victor Pálsson) og Gary Mackay-Steven (Philipp Degen). Ónotaðir varamenn: Deale Chamberlain og Krisztian Nemeth.
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Mikel San Jose.
Helsta heimild: Liverpoolfc.tv.
Varaliðið leikur næst á mánudagskvöldið þegar það spilar til úrslita í Bikarkeppni Liverpool, Liverpool Senior Cup, við Waterloo Dock. Þar fær liðið tækifæri á að vinna titil og vonandi tekst það.
TIL BAKA
Loksins sigur hjá varaliðinu!
Meistaravaralið Liverpool náði loksins að vinna sigur í kvöld þegar það lagði Hull City að velli 2:1 á útivelli. Liðið lyfti sér þar með af botni deildarinnar. Um leið gaf varaliðið tóninn fyrir aðalliðið sem mætir Hull á útivelli á laugardaginn. Guðlaugur Victor Pálsson var varamaður að þessu sinni en kom inn á.Leikurinn byrjaði fjörlega og bæði lið fengu þokkaleg færi. Heimamenn vildi fá víti snemma leiks en fengu ekki. Þeim varð þó að ósk sinni á 26. mínútu þegar Robbie Threlfall, sem er nýkominn úr láni hjá Hereford United, braut á Jamie Devitt. Sá tók vítaspyrnuna sjálfur og skoraði af öryggi með því að senda Martin Hansen í öfugt horn. Rétt á eftir fékk Mark Cullen gott færi en skalli hans úr teignum fór beint á Martin. Þetta kom sér vel fyrir Liverpool því á 43. mínútu náði liðið að jafna metin. Damien Plessis náði þá boltanum rétt við miðjuna og lék fram völlinn áður en hann skoraði með góðu langskoti sem markmaður Hull réði ekki við. Staðan var því jöfn í hálfleik.
Liverpool hóf síðari hálfleikinn af krafti og Gerardo Bruna átti gott skot sem fór rétt yfir. Argentínumanninum, sem er hér á meðfylgjandi mynd, farnaðist betur á 57. mínútu. Hull átti þá hornspyrnu en Liverpool sneri vörn í sókn. Fyrirliðinn Jay Spearing tók á rás fram völlinn og sendi svo góða sendingu á Gerardo sem komst á auðan sjó og skoraði. Liverpool náði nú betri tökum á leiknum og Gerardo átti skot í hliðarnetið eftir góðan undirbúning Robbie Threlfall. Þegar um tuttugu mínútur voru eftir kom Philipp Degen til leiks á nýjan leik eftir síðustu meiðsli sín. Liverpool hafði notað alla varamenn sína undir lokin þegar Jay varð að fara af velli vegna meiðsla og lék því einum færri síðustu mínúturnar. Tígrarnir náðu þó ekki að ógna Liverpool sem náði að halda fengnum hlut og tryggja sér sinn fyrsta deildarsigur frá því í janúar!
Sigurinn lyfti Liverpool úr neðsta sæti varaliðsdeildarinnar upp fyrir Hull City. Bæði lið hafa 18 stig en Liverpool hefur betra markahlutfall. Liverpool á einn leik eftir í deildinni.
Liverpool: Martin Hansen, Stephen Darby, Robbie Threlfall, Mikel San Jose, Godwin Antwi, Damien Plessis, Ryan Crowther, Jay Spearing, Andras Simon (Vitor Flora), Gerardo Bruna (Guðlaugur Victor Pálsson) og Gary Mackay-Steven (Philipp Degen). Ónotaðir varamenn: Deale Chamberlain og Krisztian Nemeth.
Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Mikel San Jose.
Helsta heimild: Liverpoolfc.tv.
Varaliðið leikur næst á mánudagskvöldið þegar það spilar til úrslita í Bikarkeppni Liverpool, Liverpool Senior Cup, við Waterloo Dock. Þar fær liðið tækifæri á að vinna titil og vonandi tekst það.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

