| Ólafur Haukur Tómasson

Rafa stoltur af því að vera talinn bestur

Þrír stærstu íþróttatímarit í Evrópu gerðu könnun meðal lesenda sinna hver þeim þætti vera besti knattspyrnustjórinn í bransanum. Rafael Benítez kom út sem sigurvegari í öllum þremur blöðunum og það með miklum yfirburðum, hann fékk til að mynda fleiri atkvæði en stjórar eins og Alex Ferguson, Jose Mourinho, Fabio Capello, Marcello Lippi, Vicente Del Bosque og Josep Guardiola.

Könnunin var gerð hjá spænsku tímaritunum AS og Marca, sem og ítalska tímaritinu La Gazzetta dello Sport. Rafael segist vera mjög stoltur af þessu kjöri.

"Ég er mjög ánægður. Maður getur ekki sagt að einhver einn sé sá besti í heiminum þar sem það er nær ómögulegt að fullyrða það, en að minnsta kosti eru þrjú stór tímarit og stuðningsmenn segja að við sem félag erum ekki slæmir. Það er mjög jákvætt að minni hálfu vegna þess að það þýðir að starfslið okkar eru að gera góða hluti og leikmennirnir eru mjög góðir.

Stjórarnir treysta alltaf á leikmennina og starfslið þeirra. Þú getur ekki verið góður stjóri ef þú hefur ekki gott lið að baki þér. Ef stuðningsmenn segj að þú sért að gera það gott þá er það útaf því að liðið og félagið er að vegna vel. Þetta er klárlega mjög gott því það voru stuðningsmenn í þremur löndum sem kusu þar sem það var önnur kosning í Þýskalandi." sagði Rafael Benítez við opinbera heimasíðu Liverpool FC.

Rafael situr nú sveittur yfir því hvernig formi leikmenn hans eru í fyrir viðureignina gegn Fulham á laugardaginn en margir af leikmönnum liðsins snúa aftur í dag og í gær eftir landsleikahléð.

"Öll landsleikjahlé eru eins og prófraun fyrir okkur svo við verðum að vera rólegir, afslappaði og krossleggja fingur svo við missum ekki einhverja menn frá vegna meiðsla. Þeir snúa ekki aftur fyrr en á fimmtudags kvöldið svo við höfum ekki mikinn tíma til að undirbúa okkur.

Þegar kemur að því að undirbúa okkur á vellinum þá er það nær ómögulegt. Við fljúgum á föstudaginn til Fulham svo við verðum að reyna að hugsa um andlega undirbúa leikmennina og fínstilla smáatriðin."

Með sigri á Fulham á laugardaginn getur Liverpool endurheimt toppsætið þar sem að Manchester United mun ekki leika fyrr en á sunnudaginn, hver veit nema Liverpool gæti verið komið aftur á toppinn á mánudaginn það verður spennandi að sjá.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan