| Grétar Magnússon

Houllier vill Carragher aftur í landsliðið

Fyrrum stjóri Liverpool, Gerard Houllier, hvetur Fabio Capello núverandi landsliðsþjálfara Englendinga til að sannfæra Jamie Carragher um að taka fram landsliðsskóna að nýju.  Houllier telur að Carragher geti spilað hægri bakvörð nú þegar Englendingar eiga í stökustu vandræðum með að manna þá stöðu.

Carragher spilaði 34 landsleiki áður en hann ákvað að hætta að gefa kost á sér vegna samstarfsörðugleika við hina ýmsu landsliðsþjálfara í gegnum tíðina.  Hann var ekki sáttur við hversu fá tækifæri hann fékk til þess að spila miðvarðastöðuna með landsliðinu þrátt fyrir að vera iðulega hampað sem einum besta miðverði sem Englendingar hafa átt.

Hægri bakvarðastaðan hjá enska landsliðinu hefur verið vandræðastaða undanfarið vegna meiðsla Gary Neville og Wes Brown.  Auk þess sem Glen Johnson hefur ekki staðið sig nógu vel þegar hann hefur fengið tækifæri.  Það virðist því vera þannig að þessi staða sé laus fyrir góða menn.  Houllier telur sig vita hvaða leikmaður það er sem gæti leyst vandræði Fabio Capello.

,,Ég er kannski ekki í aðstöðu til að veita Capello ráðleggingar," sagði Houllier.  ,,En ég myndi fara til Jamie Carragher og segja við hann að krafta hans væri óskað.  Ég myndi biðja hann um að koma í landsliðið í byrjun næsta tímabils.  Ég hef Carragher í huga mínum sem aðal hægri bakvörð Englendinga því þeir hafa engar augljósar lausnir á þessu vandamáli um þessar mundir, en það besta við Carra er að hann getur spilað allar stöður í vörninni.  Ef þess væri óskað gæti hann líka spilað aftarlega á miðjunni."

,,Öll þessi reynsla myndi nýtast vel í Heimsmeistarakeppninni.  Ofaná þetta alltsaman þá er hann líka topp náungi til að hafa í búningsherberginu."

Capello lýsti því yfir í síðasta mánuði að dyrnar væru opnar fyrir Carragher og Paul Scholes ef þeir hefðu áhuga á því að koma aftur til liðs við landsliðið.

Hinsvegar eru ekki miklar líkur á því að Carragher muni íhuga endurkomu, og þá sérstaklega ekki þegar aðeins er verið að tala um að leysa hægri bakvarðastöðuna, því eins og áður sagði hefur hann mestan áhuga á að spila í miðri vörninni.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan