Landsleikjafréttir
Fjöldi landsleikja fór fram í gærkvöldi í undankeppni HM og leikmenn Liverpool fóru víða. Einn skoraði og margir stóðu fyrir sínu.
Sami Hyypia, fyrirliði Finna, var eins og klettur í vörn Finna sem unnu sætan 2:0 sigur í Cardiff. Gamli meistarinn Jari Litmanen lagði upp fyrra markið fyrir Jonatan Johansson. Shefki Kuqi skoraði seinna markið. Sami var frábær og hafði góðar gætur á fyrrum félaga sínum Craig Bellamy. Markmaður Wales varði vel skalla frá Sami.
Hollendingar unnu öruggan 3:0 sigur á Skotum í Amsterdam. Klaas Jan Huntelaar og Robin van Persie gáfu tóninn og Dirk Kuyt innsiglaði sigurinn úr vítaspyrnu undir lokin. Þetta mun hafa verið tíunda mark hans í 50 landsleikjum.
Daniel Agger var í vörn Dana sem unnu öruggan 3:0 sigur á Möltu. Daniel þótti spila vel.
Yossi Benayoun lék sinn fyrsta leik eftir meiðsli þegar Ísrael tók á móti Grikkjum. Leiknum lauk með jafntefli 1:1. Forráðamenn Liverpool voru ekket of kátir með að Yossi skyldi gefa kost á sér í þennan leik en hann sagðist ekki vilja missa af leiknum og fór. Hann átti góðan leik og átti þátt í marki Ísraels.
Fernando Torres og Xabi Alosno voru í byrjunarliði Spánverja sem tók á móti Tyrkjum. Evrópumeistararnir herjuðu fram sigur 1:0 á Santiago Bernabeu. Gerard Pique skoraði markið. Þeir Jose Reina, Alvaro Arbeloa og Albert Riera sátu á bekknum og komu ekki við sögu. Þetta var 30. landsleikur Spánverja án taps. Af þessum 30 leikum hafa 28 unnist.
Javier Mascherano leiddi Argentínumenn til öruggs 4:0 sigurs gegn Venesúela. Diego Maradona stýrði argentínska landsliðinu í fyrsta sinn á heimavelli eftir að hann tók við og allt ætlaði um koll að keyra þegar kappinn tók sér stöðu við varamannabekkinn. Argentínumenn fóru á kostum og goðsögnin fer vel að stað með liðið. Lionel Messi, Carlos Tevez, Maxi Rodriguez og Sergio Aguero, sem er tengdasonur Diego, skoruðu mörkin.
Steven Gerrard lék úti á vinstri kanti þegar Englendingar tóku á móti Slóvakíu á Wembley. Steven, sem átti mjög góðan leik, lagði upp fyrsta markið í leiknum fyrir Emile Heskey fyrrum félaga sinn hjá Liverpool. Þetta var sjötta landsliðsmark hans í 52 leikjum. Steven var skipt af velli í hálfleik. Wayne Rooney skoraði tvö mörk í síðari hálfleik og Frank Lampard eitt. Martin Skrtel var í vörn Slóvaka en spilaði ekki vel. Þetta var vináttuleikur.
Hér eru myndir úr landsleikjunum af vefsíðu BBC.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

