| Sf. Gutt

Aðstoðarmenn Rafael Benítez framlengja samninga

Í dag var tilkynnt að helstu aðstoðarmenn Rafael Benítez ætla að fylgja fordæmi hans og vera áfram hjá Liverpool. Um er að ræða aðstoðarframkvæmdastjórann Sammy Lee, Mauricio Pellegrino sem þjálfar aðalliðið, markmannsþjálfarann Xavi Valero og þolþjálfarann Paco de Miguel. Yfirnjósnarinn Eduardo Macia verður líka áfram hjá Liverpool. Þessir menn hafa allir fengið minnst tveggja ára viðbót við núgildandi samninga sína.

Rafael Benítez segir að það hafi verið sér mikið kappsmál að halda helstu aðstoðarmönnum sínum hjá sér en hann framlengdi sjálfur samning sinn um fimm ár á dögunum. 

,,Ég sagði, þegar ég framlengdi samning minn nýlega, að það væri forgangsmál að koma framtíð þjálfaraliðs míns á hreint sem fyrst. Við vinnum allir mjög vel saman og stöðugleiki er nauðsynlegur ef við eigum að geta byggt ofan á þær framfarir sem við höfum náð á þessari leiktíð og gert félagið enn öflugra. Ég er mjög ánægður með að við náðum að ganga frá samningum við þessa menn."

Í dag var líka tilkynnt að Liverpool F.C. hefði ráðið Frank McParland til að gera úttekt á unglingastarfi Akademíu félagsins. Frank er öllum hnútum kunnugur hjá Liverpol en hann var fyrinjósnari hjá félaginu frá 2004 til 2007.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan