| SSteinn

Barnaárshátíðin er á laugardaginn

Það er orðin löng hefð fyrir því að Liverpoolklúbburinn á Íslandi haldi sérstaka árshátíð fyrir yngri meðlimi klúbbsins og börn meðlima.  Þetta hefur mælst mjög vel fyrir og hefur aðsóknin verið með miklum ágætum undanfarin ár.  Að þessu sinni verður hátíðin haldin þann 21. mars nk, eða á laugardaginn.  Þar sem um ræðir 15 ára afmæli klúbbsins, þá verður hátíðin enn glæsilegri en áður.

Staðsetningin verður áfram sú sama, eða í íþróttahúsinu í Árbæjarskóla og hefst hátíðin klukkan 14:00 og stendur til klukkan 16:00.  Farið verður í leiki og settar upp þrautir í íþróttasalnum, á meðan verða svo fjölmörg Liverpool mörk sýnd á breiðtjaldi í hliðarsalnum, þannig að allir munu finna sér eitthvað við hæfi.  Að venju verður svo happdrætti, þar sem allir krakkar munu fara heim með vinning og pizzur og drykkir verða einnig í boði.  Lalli Töframaður mun svo mæta á svæðið og sýna ýmis skemmtileg töfrabrögð.

Endilega takið daginn frá og mætið með ungviðið á svæðið.  Að vanda er frítt inn á hátíðina.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan