| Sf. Gutt

Jafnglími á forsýningunni

Segja má að forsýning fyrir stórleik Liverpool og Manchester United, núna á laugardaginn, hafi farið fram í kvöld þegar varalið risanna mættust. Jafnglími varð 2:2.

Svisslendingurinn Philipp Degen, sem er hér á mynd, sneri aftur til leiks eftir enn ein meiðslin og endurkoman hefði ekki getað byrjað betur því hann skoraði strax á 4. mínútu. Mikel San Jose sendi langa sendingu fram völlinn. Vörn Manchester United hikaði og boltinn fór til Philipp sem skoraði í autt markið. Það var ekki að undra að Philipp fagnaði vel. Gestirnir náðu fljótlega að átta sig eftir þetta áfall og á 20. mínútu jöfnuðust leikar. Danny Welbeck fékk þá stungusendingu fram völlinn og vippaði yfir Dean Bouzanis.

Fjórum mínútum seinna haltraði Philipp Degen meiddur af leikvelli. Óheppni þessa bakvarðar ríður sannarlega ekki við einteyming. Enn versnaði staða Liverpool á 36. mínútu þegar Fabio Da Silva skoraði eftir stungusendingu frá Lee Martin. Mínútu fyrir hálfleik meiddist annar leikmaður Liverpool. Brasilíumaðurinn Victor Flora fór þá af velli og Jay Spearing, sem stóð sig svo vel gegn Real Madrid, kom á vettvang.

Jay lét strax til sín taka og Liverpool fór að spila betur. Jöfnunarmark kom á 49. mínútu. Vincent Weijl sendi fyrir markið og Daniel Pacheco kom boltanum framhjá Pólverjanum Tomasz Kuszczak í marki United. Liverpool sótti enn í sig veðrið og Jay lagði upp tvö færi sem bæði fóru forgörðum. United ógnaði líka og þeir Martin Kelly og San Jose náðu að stoppa Lee Martin. Daniel lagði svo upp færi fyrir Guðlaug Victor, sem lék allan leikinn, en hann náði ekki að skora. Martin Kelly tók rispu fram völlinn undir lokin en skot hans var stöðvað áður en boltinn komast á markið. Mörkin urðu ekki fleiri og jafnglími varð því niðurstaða í þessari forsýningu fyrir stórslaginn á laugardaginn.

Liverpool: Bouzanis, Mendy (Huth 82. mín.), Irwin, San Jose, Kelly, Plessis, Degen (Crowther 24. mín.), Pálsson, Flora (Spearing 44. mín.), Pacheco og Weijl. Ónotaðir varamenn: Hansen og Dalla Valle.

Áhorfendur á Halliwell Jones leikvanginum: 3.955.

Maður leiksins samkvæmt Liverpoolfc.tv: Jay Spearing.

Helsta heimild: Liverpoolfc.tv.

Liverpool er í næst neðsta sæti með 14 stig. Hull City er neðst með stigi minna. Sunderland leiðir deildina með 29 stig. Manchester City er í öðru sæti með 24 stig.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan