| Sf. Gutt

Af eigendamálum

Þeir George Gillett og Tom Hicks eiga enn Liverpool Football Club. Áhugasamir aðilar eru þó alltaf að spá í að reyna að kaupa félagið. Nú síðast hefur verið fjallað um áhuga Al-Kharafi fjölskyldunnar í Kúwæt en hún mun hafa töluverðan áhuga á að kaupa Liverpool F.C. Fulltrúar úr þessari fjölskyldu voru gestir þeirra George og Tom á leik Liverpool og Chelsea á dögunum.

Í staðarblaðinu Echo er þetta haft eftir Abdulla Al-Sager talsmanni Kharafi fjölskyldunnar. ,,Viðræður ganga mjög illa því eigendurnir vilja fá alltof hátt verð fyrir félagið. Ég held að ekkert muni gerast fyrr en við fáum betra verðtilboð. En viðræður standa enn yfir."

Samkvæmt fréttinni í Echo hafa aðilar í Mið Austurlöndum og Bandaríkjunum líka áhuga á að kaupa Liverpool F.C. Við verðum að sjá hvað úr verður á næstu vikum og mánuðum.  

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan