Insua vill halda sætinu
Emiliano Insua segist munu gera allt sem í sínu valdi stendur til að halda sæti sínu í byrjunarliðinu. Hann sneri aftur í byrjunarliðið gegn Sunderland eftir að hafa verið að spila með U-20 ára landsliði Argentínu.
Insua var fjórum sinnum í byrjunarliðinu í jólatörninni og þótti standa sig gríðarlega vel, það var því sjónarsviptir af honum þegar hann þurfti að halda til Argentínu til að spila með landsliði sínu. Insua veit sem er að það verður ekki auðvelt að halda sæti sínu í liðinu þar sem þeir Fabio Aurelio og Andrea Dossena eru að keppa við hann um vinstri bakvarðastöðuna.
,,Þetta er mjög erfitt því þetta er besta deildarkeppnin í heiminum," sagði Insua í viðtali við LFC sjónvarpsstöðina. ,,Að spila fyrir Liverpool er ennþá erfiðara vegna þess að liðið þarf alltaf að leika til sigurs. Það er líka margir leikmenn hér sem eru landsliðsmenn."
,,En ég kom til baka frá keppninni í Suður-Ameríku fyrir tveim vikum og ég er byrjaður að æfa með aðalliðinu. Ég held bara áfram að æfa vel og held áfram að sýna stjóranum að ég er nógu góður. Það var erfið ákvörðun fyrir mig að fara í burtu vegna þess að ég hafði spilað fjóra leiki í röð en maður verður að segja já við landsliðið. Ég talaði við Rafa og hann ráðlagði mér að fara."
,,Ég missti af mikilvægum leikjum eins og t.d. gegn Everton og Chelsea en nú hugsa ég bara um framtíðina. Ég hef spilað nokkra leiki síðan ég kom til baka og held að ég hafi staðið mig vel. Að spila með aðalliðinu hefur gefið mér tækifæri á því að bæta mig."
,,Stjórinn hefur aukið sjálfstraustið hjá mér. Hann sagði mér að vera rólegur þegar ég spila og eftir leikinn sagði hann mér að halda áfram á sömu braut."
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

