| Ólafur Haukur Tómasson

Rick Parry lætur af störfum

Opinber heimasíða Liverpool FC hefur greint frá því að Rick Parry, framkvæmdastjóri Liverpool FC, segi skilið við félagið. Greint var frá þessu í morgun.

Rick Parry, sem hefur starfað lengi hjá félaginu, mun ekki hætta strax heldur mun hann halda stöðunni fram á sumar.

Það þykir því líklegt að Parry hafi tapað baráttunni við Rafael Benítez um hver eigi að hafa völdin þegar kemur að félagsskiptum og samningaviðræðum.

Annar eigandi Liverpool, Tom Hicks, sagði áðan: "Hollusta Rick við Liverpool Football Club sýnir þrá hans um að félaginu verði stjórnað á skilvirkan hátt á þessum breytingatímum og erum við þakklátir fyrir hans hjálp. Hann mun alltaf vera góðvinur félagsins."

Hinn eigandi Liverpool, George Gillett bætti við: "Ég vil þakka Rick fyrir mikla þjónustu fyrir félagið og aðstoðina sem hann hefur veitt okkur síðan við keyptum félagið. Hann hefur verið ómissandi fyrir árangur félagsins undanfarinn áratug og fær hann með okkar bestu óskir í framtíðinni."

Rick Parry sagði: "Ég hef verið hjá Liverpool í tólf spennandi ár og er virkilega stoltur af því sem félagið hefur áorkað á þeim tíma. Sigurinn í Madríd er einn af hápunktunum sem við höfum upplifað og bætast við þau augnablik sem gera Liverpool og stuðningsmenn þess svo einstaka.

Það hafa verið forréttindi að þjóna félaginu og sem ævilangur stuðningsmaður þess þá óska ég eigendunum, Rafa, leikmönnunum og frábæru starfsliði alls hins besta í framtíðinni. Ég mun yfirgefa félagið í lok tímabilsins vitandi að það sé enn sterkt og með stuðningsmenn sem eiga skilið árangur í öllu sem Liverpool tekur að sér."

Stjórnin mun leita að nýjum framkvæmdastjóra og munu greina stuðningsmönnum og hluthöfum félagsins frá því þegar eitthvað gerist í þeim málum.

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan