| Sf. Gutt

Guðlaugur Victor vekur athygli Steven Gerrard

Guðalugur Victor Pálsson hefur nú verið hjá Liverpool í um mánuð. Honum hefur gengið vel að koma sér fyrir og er búinn að leika einn leik með varaliði Liverpool. Rætt var við umboðsmann hans Guðlaug Tómasson, núna í vikunni,  á dansku vefsíðunni Bold.dk.

„Guðlaugur hefur fengið óskabyrjun í Liverpool. Hann hefur verið fljótur að aðlagast liðinu og það hefur komið mönnum hjá félaginu örlítið á óvart hversu fljótur hann hefur verið að koma sér fyrir. Ég bjóst reyndar við því vegna þess að Guðlaugur býr yfir mjög góðu hugarfari sem hentar fullkomlega í ensku knattspyrnuna. Fjölskylda hans flytur til Liverpool núna um helgina. Hingað til hefur hann verið hjá Nikola sem hann hefur tengst sterkum böndum. En það verður auðvitað ennþá betra fyrir hann að fá sinn eigin stað til að búa á og fá móður sína og systur til sín. Þær hafa báðar stutt vel við bakið á honum."

Nikola sem Guðlaugur nefnir er Nikola Saric sem er danskur strákur sem kom til Liverpool síðasta sumar. Þess má geta að Oliver Feldballe, sem talinn er einn af efnilegustu leikmönnum Dana hefur æft með Liverpool þessa vikuna. Hann leikur með OB í Danmörku.

Guðlaugur Victor hefur nú þegar vakið athygli Steven Gerrard og Guðlaugur Tómasson hafði þetta eftir fyrirliða Liverpool. „Gerrard sagði beinlínis við hann í gær að Guðlaugur minnti hann á sig þegar hann var á hans aldri. Það er nú ekki amalegt fyrir ungan knattspyrnumann að fá svona hrós!"

Gary Ablett, þjálfari varaliðs Liverpool, hefur sagt að Guðlaugur eigi eftir að leika með varliði Liverpool á þessari leiktíð. Frá því Guðlaugur kom til Liverpool hefur varaliðið aðeins leikið tvo leiki. Hann var varamaður í fyrri leiknum og kom inn á í þeim seinni. Hann á því örugglega eftir að spila meira með liðinu hans Gary Ablett.

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan