Ykkar skoðun
Á dögunum könnuðum við hvaða leikmaður ykkur, lesendum Liverpool.is, þótti standa sig best í janúar. Fyrir valinu hjá ykkur varð Steven Gerrard og þarf það val ekki að koma á óvart því hann lék frábærlega. Hlaut fyrirliðinn yfirbuðakosningu. Hann lék alla fimm leiki Liverpool og skoraði tvö mörk. Bæði komu þau gegn Everton. Hann lagði að auki upp eitt stykki. Steven var líka kjörinn besti leikmaðurinn í desember.
Annar í kjörinu varð Xabi Alonso sem er búinn að leika mjög vel á leiktíðinni. Hann varð líka annar í næsta mánuði á undan. Í þriðja sæti varð Fernando Torres sem sneri aftur til baka eftir meiðsli. Hann skoraði eitt mark gegn Preston í F.A. bikarnum í sínum fyrsta leik eftir meiðslin.
Hér er niðurstaðan úr könnuninni!
Steven Gerrard 57,89 %
Xabi Alonso 10,40 %
Fernando Torres 9,59 %
Sami Hyypia 9,07 %
Jamie Carragher 6,05 %
Jose Reina 4,28 %
Einhver annar 2,73 %
Heildarfjöldi atkvæða: 1356.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

